Í Flóanum

29.10.2010 07:18

Tónahátíð

Félagsheimilin í Flóahreppi standa fyrir Tónahátíð í félagsheimilunum nú í október.  Tónahátíðin saman stendur af þremur tónleikum sem haldir eru til skiptist í öllum félagsheimilunum.

Fyrstu tónleikarnir voru haldnir í Þingborg í byrjun mánaðarins eða þann 2.okt. Þar mættu þeir kappar Ragnar Bjarnason, Ómar Ragnarsson og Þorgeir Ástvaldsson og skemmtu fólki með söng og gamanmálum. Aðsókn var ágæt og undirtektir góðar.emoticon

Þann 15.okt voru í Þjórsárveri haldir tónleikar með  Hjaltested/Íslandi dúettinum. Dúettin skipa þau Ingibjörg Aldís Ólafsdóttir sópran sem er sonardóttir Sigurveigar Hjalested söngkonu og Stefán Helgi Stefánsson sem er langafabarn  Stefáns Íslandi óperusöngvara.  Þau fluttu vandaða söngskrá við undirleik Ólafs B Ólafssonar.  Meðal annars fluttu þau lagið "Flóahreppur" en lag og texti er eftir Ólaf.

Að loknum tónleikunum stjórnaði Ólafur fjöldasöng og spilaði undir á harmonikku. Um 50 manns sóttu þessa tónleika og nokkur fjöldi gestanna skemmti sér með söng fram á nótt. emoticon

Í kvöld 29.okt verða svo í Félagslundi tónleikar með Benny Crespo´s. Þetta band er skipað þeim Helga Rúnari, Magnúsi Öder, Bassa Ólafssyni og Lovísu Elísabetu Sigrúnardóttur sem er betur þekkt yndir nafninu Lay Law. Þau verða með sitt hljóðkerfi og ýmsan ljósabúnað og bjóða upp á rafmagnað kvöld með ljósadýrð. Helgi Valur trúbador mun hita upp.

Það er ástæða til að þakka rekstrarstjórn og húsvörðum félagsheimilanna  fyrir metnaðarfulla dagskrá á þessari Tónahátíð.   Ég skemmti mér vel á þessum tveimur tónleikum sem búnir eru og ætla ekki að missa af tónleikunum í kvöld.

Flettingar í dag: 26
Gestir í dag: 13
Flettingar í gær: 78
Gestir í gær: 17
Samtals flettingar: 131055
Samtals gestir: 23967
Tölur uppfærðar: 23.4.2024 10:49:36
clockhere

Í Flóanum

Nafn:

Aðalsteinn Sveinsson

Farsími:

8607714

Heimilisfang:

Kolsholti I

Staðsetning:

Flóahreppur

Heimasími:

4863304

Tenglar