Í Flóanum |
||
03.03.2011 21:17Gullið hans AfaHún Aldís Tanja heimasæta í Jaðarkoti er orðinn 6 ára gömul. Mér finnst eins og það sé örstutt síðan hún kom hér fyrst 9 mánaða gömul með mömmu sinni um jólin 2005. Síðan þá hefur hún verið mitt næst elsta barnabarn og við höfum haft tækifæri til þess að gera margt skemmtilegt saman. Á meðan foreldrar hennar þau Sigmar og Sandra voru að byggja húsið sitt í Jaðarkoti hér örstutt frá átti hún heima hjá okkur eða í tæpt ár. Eftir að þau fluttu í húsið er hún hér tíður gestur auk þess sem við hittumst alltaf reglulega annað hvort í fjósinu, hesthúsinu, fjárhúsinu eða í einhverjum öðrum útverkum hér á bæ. Það hefur aldrei verið neinn verkkvíði í Aldísi og hún gjarna tekst á við hin ýmsu og flóknustu verkefni. Þegar við erum tvö ein saman spjöllum við mikið og höfum eiginlega gert það allt frá því áður en hún var byrjuð að tala og gerum enn. Aldís á mikið af öfum og ömmum sem hún hittir reglulega. Stundum skokkar hún hér yfir túnið og heimsækir "Langa og Löngu" (langalöngu) sem búa hérna líka. Hún á einnig bæði afa og ömmu í Grindavík sem hún heimsækir regluleg. Hún Aldís veit nákvæmlega hvernig á að umgangast svona fólk þannig að gagn sé af. Ég á von á því að við eigum ýmislegt eftir að bralla og ræða saman í framtíðinni. Auðvita breytast verkefnin og umræðuefni okkar eftir því sem við bæði eldumst. Nú hefur hún t.d sagt mér að hún ætli að hefja nám í Flóaskóla næsta haust og sé því fljótlega að fara að hætta í leikskólanum. Eins og um margt annað sem hún ætlar að gera heyrist mér hún full tilhlökkunnar að takast á við það verkefni. Hún puðar nú við að æfa sig í að skrifa og reikna þannig að hún verði sem best undirbúin fyrir krefjandi skólagöngu næsta haust. Skrifað af as Flettingar í dag: 142 Gestir í dag: 20 Flettingar í gær: 72 Gestir í gær: 8 Samtals flettingar: 126866 Samtals gestir: 22930 Tölur uppfærðar: 28.3.2024 15:37:12 |
clockhere Eldra efni
Í Flóanum Nafn: Aðalsteinn SveinssonFarsími: 8607714Tölvupóstfang: kolsholt@islandia.isHeimilisfang: Kolsholti IStaðsetning: FlóahreppurHeimasími: 4863304Tenglar |
© 2024 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is