Það var steypudagur hér á föstudaginn. Þá var ráðist í að leggja í gólfið á verkstæðinu. Það er liður í heilmiklum framkvæmdum sem þeir Sigmar og Kristinn hafa unnið að á síðustu mánuðum.
Eins og á alvöru steypudögum dreyf að mannskap og gekk verkið bæði fljótt og vel. Það er nú reyndar þannig með gólfsteypu og þegar búið er að leggja út steypuna er verkið rétt að byrja. Í gær og í nótt hafa þeir félagar unnið í þvi að slípa steypuna jafnóðum og hún hefur verið að þorna. Nú er komið hér hið glæsilegasta gólf.