Í Flóanum

20.04.2012 07:24

Gleðilegt sumar

Í tilefni þess að í gær var sumardagurinn fyrsti voru heyvinnutækin tekin til kostana seinnipartinn í gær. Ekki var það nú svo, þrátt fyrir að það vorar snemma, að hér væri kominn slægja á túninn. Hér var frekar um það að ræða að verið var að klára heyskapinn frá því í fyrra sumar. emoticon



Hálmurinn á kornökrunum, sem aldrei var hægt að þurrka í haust, var nú orðinn brauðþurr og því tímabært að taka hann saman. Það mátti ekki seinna vera því nú er nauðsynlegt að fara að vinna akrana og sá til uppskeru á þessu ári.





Annars var hér haldið upp á sumarkomuna með hefðbundnum hætti. Umf. Vaka stóð að vanda fyrir viðavangshlaupi á Þjórsárbökkum. Íbúar, bæði fyrrverandi og núverandi, úr gamla Villingholtshreppnum fjölmenntu eins og svo oft áður. Yngstu þátttakendur voru á fyrsta ári en sá elsti áttræður. Alls held ég að þátttakendur hafi verið hátt 60 sem fóru þennan rúma kílómetra saman í vorblíðunni í gær.



Ég tók að sjálfsögðu þátt í hlaupinu. Það gerðu einnig flest mín barnabörn og slógst ég í för með þeim yngsta, honum Hrafnkatli í Jaðarkoti. Hann var gaf ekkert eftir í sínu fyrsta hlaupi á sumardagin fyrsta og ég hef trú á að þetta hafi ekki verið það síðasta hjá honum.  

Sigurverarar í víðavangshlaupinu voru þau frændsystkini frá vesturbænum í Kolsholti. Í kvennaflokki Sólveig Larsen og í karlaflokki Þorgils Kári Sigurðsson. Glæsilegur árangur hjá þessu unga íþróttafólki og óska ég þeim til hamingju með það. emoticon

Flettingar í dag: 29
Gestir í dag: 14
Flettingar í gær: 78
Gestir í gær: 17
Samtals flettingar: 131058
Samtals gestir: 23968
Tölur uppfærðar: 23.4.2024 11:30:19
clockhere

Í Flóanum

Nafn:

Aðalsteinn Sveinsson

Farsími:

8607714

Heimilisfang:

Kolsholti I

Staðsetning:

Flóahreppur

Heimasími:

4863304

Tenglar