Í Flóanum |
||
31.10.2016 23:44Á bak og burtÁ bak Mér virðist sem vekringi mínum verði brátt riðið á slig: Það er eins og einhver sitji aftan við mig. Ríddu drengur, ríddu, reyndu ei aftur að gá. Ef þú heldur á taumunum taki þá tollirðu á. En brátt munt þú detta af baki: Búðu þig undir það: - Eg er löngu farinn að leita að lendingarstað. ...og burt Á gæðingi hélt eg heiman og hafði í töskunni von. Svo mætti eg á miðjum vegi meistara Parkinson. Hann reið á brokki á bleikum og bauðst mér að fylgja um sinn. Brátt tyllti hann sínum í taglið svo tölti ei klárinn minn. Leið er mér löngu orðin lamandi samfylgd hans. Nú förum við báðir fetið: - Eg er félagi þessa manns. höf: Erlingur Sigurðarson frá Grænavatni Úr ljóðabókinni Haustgríma (2015) Skrifað af as Flettingar í dag: 112 Gestir í dag: 11 Flettingar í gær: 215 Gestir í gær: 24 Samtals flettingar: 127051 Samtals gestir: 22945 Tölur uppfærðar: 29.3.2024 10:05:17 |
clockhere Eldra efni
Í Flóanum Nafn: Aðalsteinn SveinssonFarsími: 8607714Tölvupóstfang: kolsholt@islandia.isHeimilisfang: Kolsholti IStaðsetning: FlóahreppurHeimasími: 4863304Tenglar |
© 2024 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is