Í Flóanum |
||
Færslur: 2010 Maí30.05.2010 07:49KosningaúrslitNú liggja úrslit kosninganna fyrir og get ég ekki annað en verið mjög sáttur. R litinn fékk 254 atkvæði eða 72% en T listinn 97 atkvæði eða 28%. Kosningaþátttaka var nokkuð góð eða um 85,5%. Auðir seðlar voru 14 og 1 ógildur. Kosningabaráttan gekk vel fyrir sig. Nokkuð fannst mér sótt að okkur og höfðum við gott af því. Það gaf okkur líka tækifæri til þess að skýra okkar málstað betur en umræða meðal kjósenda var talsverð. Hitti ég æði marga og fékk mörg símtöl þar sem ég var spurður beint út í hin ýmsu mál og beðin um skýringar á fullyrðingum sem haldið var fram af mótframbjóðendum. Með frambjóðendur mínir á listanum unnu allir mjög vel og tóku virkan þátt í umræðunni. Lögðum við áherslu á að hitta sem flesta og ræða beint við fólkið. Með þessum kosningum verða miklar mannabreytingar í sveitastjórninni en ég er sá eini sem er í sveitastjórn núna og held áfram á næsta kjörtímabili. sem nú er að hefjast. Ég óska nýkjörnum sveitastjórnarmönnum til hamingju með kjörið og hlakka til þess að vinna með þeim. Fráfarandi sveitastjórnarmönnum þakka ég mikið og gott samstarf á síðast liðum fjórum árum. Þetta samstarf hefur verið bæði árangursríkt og farsælt. Skrifað af as 28.05.2010 07:46Vorið í FlóanumVorið er alltaf skemmtilegur tími. Þetta vor er ekki minna annasamt en öll önnur vor. Verkefnin eru áhugaverð og það gefur öllum kraft að fylgjast með bæði gróðri og dýralífi lifna við allt í kringum sig að loknum vetri. Bæði börn og fullorðnir fyllast bjartsýni og verkgleði.
Skrifað af as 20.05.2010 07:40Samningur um neysluvatnVegna mikilla umræðu og skrifa um samninginn um neysluvatnið sem sveitarfélögin Árborg og Flóahreppur gerðu sín á milli fyrir nokkru ritaði ég eftirfarandi grein í héraðsblöðin í þessari viku: Í síðasta mánuði var undirritaður samningur um öflun og sölu neysluvatns milli sveitarfélagsins Árborgar og Flóahrepps. Með þessum samningi er mikilvægu skrefi náð í neysluvatnsmálum í Flóahreppi. Samningurinn tryggir vatnsveitu Flóahrepps aðgang að fyrsta flokks neysluvatni hvenær sem er og í því magni sem á þarf að halda hverju sinni, allt að 20 lítum á sekúndu. Hér er um mikið öryggisatriði að ræða fyrir vatnsveitu Flóahrepps en sem kunnugt er hafa verið vandræði með vatn í sveitarfélaginu í þurrkum á liðum sumrum.
Skrifað af as 14.05.2010 07:54FramboðsfundurÁ miðvikudagskvöldið s.l. var haldinn framboðsfundur í Þjórsárveri. Það vorum við frambjóðendur R listans sem boðuðum til fundarins til þess að kynna stefnuskrá okkar og helstu áherslur í komandi kosningum til sveitarstjórnar Flóahrepps. Við ákváðum að hafa fundinn með nýju sniði og slepptum öllum framsöguræðum og ræðum yfirleitt. Þess í stað var öllum fundarmönnum skipt í sex til átta manna umræðuhópa. Við frambjóðendur fórum svo á milli hópanna og ræddum beint við fundarmenn um það sem þeim lá mest á hjarta í hverjum hóp. Við stoppuðum í 10 mín á hverju borði. Mér fannst þetta gefast ágætlega. Þarna fóru fram bein skoðanaskipi og ég vona að fundarmenn allment hafi verið sáttir við þetta. Þeir höfðu tækifæri á að spyrja okkur frambjóendur beint og fá svör strax. Ég finn fyrir töluverðum áhuga hjá fólki að ræða hin ýmsu mál. Það er áhugavert og nauðsynlegt að einbeita sér að því. Það er því æði verk framundan ef við eigum að ná því að spjalla við alla kjósendur fyrir kosningar. Skrifað af as 07.05.2010 07:46Samningur um VatnÁ sveitarstjórnarfundi í vikunni staðfesti sveitarstjórnin Samning um öflun og sölu vatns milli Flóahrepps og Árborgar. Samningur þessi er búin að vera í undirbúningi í allan vetur og var undirritaður fyrir skemmstu. Stórum áfanga er nú náð í vatnsmálum beggja sveitarfélaganna. Aðili að þessu samningi er Landsvirkjun en samkvæmt samkomulagi milli hennar og Flóahrepps mun fyrirtækið fjármagna þær framkvæmdir sem ráðast þarf í vegna vatnsöflunnar í Flóahreppi. Eins og allir góðir samningar þá er þessi samningur báðum sveitarfélögunum mjög hagstæður. Hann tryggir íbúum Flóahrepps aðgang að fyrsta flokks vatni allt að 20 lítrum á sekúndu. Flóahreppur kaupir vatnið í því magni sem hann þarf á að halda hverju sinni á sveitarfélagsmörkum á hagstæðu verði. Hér er um mikið öryggisatriði að ræða til framtíðar fyrir íbúa Flóhrepps.
Hér í sveit þarf að leggja nýja stofnlögn með þjóðvegi eitt frá sveitarfélagsmörkum að Neistastöðum og þaðan í miðlunartankinn í Ruddakrók. Þessi stofnlögn styrkir dreyfikerfið í gamla Hraungerðishreppnum og gefur möguleika á frekari uppbyggingu t.d. upp með Langholtsvegi. Skrifað af as 03.05.2010 07:39HúsflutningarHér á bæ er lífið nokkuð fjölbreytt og verkefnin sem verið er að fást við mörg og misjöfn. Hér háttar svo til að hér er vettvangur fjögurra ættliða í starfi og leik. Öll stöndum við með einum eða öðrum hætti að þeim búskap sem hér er stundaður en þar fyrir utan er einnig verið að fást við hin fjölbreyttustu verkefni á sviði félagsmála og annarra áhugamála. Mörg okkar stunda einnig aðra atvinnu með búrekstrinum. Meðlimur úr elstu kynslóðinni tók til við að byggja bæ í svartasta skammdeginu í vetur. Byggingarefnið var afgangs byggingarefni sem hér hefur fallið til í gegnum árin og verið haldið til haga af stakri hirðusemi. Ekki hefur fundist not fyrir þetta byggingarefni fram til þessa og það hefur aðallega tekið páss í geymslum.
Skrifað af as
Flettingar í dag: 176 Gestir í dag: 33 Flettingar í gær: 836 Gestir í gær: 166 Samtals flettingar: 190488 Samtals gestir: 33829 Tölur uppfærðar: 2.4.2025 08:23:53 |
clockhere Eldra efni
Í Flóanum Nafn: Aðalsteinn SveinssonFarsími: 8607714Tölvupóstfang: kolsholt@islandia.isHeimilisfang: Kolsholti IStaðsetning: FlóahreppurHeimasími: 4863304Tenglar |
© 2025 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is