Í Flóanum |
||
Færslur: 2010 Júní26.06.2010 07:44FundirÍ gærmorgun var fyrsti fundur skipulagsnefndar uppsveita Árnessýslu og Flóahrepps á þessu kjörtímabili haldinn á Laugarvatni. Töluverðar breytingar hafa orðið á nefndinni eftir kosningarnar. Frá því að ég tók sæti í nefndinni fyrst 2007 eru allir hinir sem þá voru í nefndinni hættir og nýir fulltrúar tekið við. Stjórn SASS samþykkti að taka þátt í að senda heilbrigðisráðherra ásamt Sambandi sveitarfélaga á Suðurnesjum, Samtökum sveitarfélaga á Vesturlandi og Hafnafjarðarbæ erindi vegna málsins. Skrifað af as 22.06.2010 07:48SumarsólstöðurNú er bjartasti tími ársins. Nóttin er björt og veðrið undanfarna daga hefur einkennst að mikilli blíðu. Ég mæli með því að hluti af svona nóttum sé tekin í útreiðar. Ég held að tvegga tíma útreiðartúr á þessu tíma jafnist á við fjögurra tíma svefn. Þórarinn bróðir sem býr í Hafnafirði kom hér í gærkvöldi og gerðum við það eina gáfulega í stöðunni. Við ásamt Jóni í Lyngholti lögðum á gæðingana og riðum út í kvöldblíðunni í Flóanum. Við létum auðvita besta og viljugasta hrossið undir gestinn. Fyrir rúmlega þrjátíu árum þegar við Þórarinn vorum báðir ennþá yngri en við erum núna keyptum við sitt hvort merfolaldið frá Laugardælum. Þórarinn vann sem fjósamaður í Laugardælum á sumrin þegar hann var í menntaskóla. Eitthvað fór hann á hestbak á þessum árum og fékk áhuga á að rækta hross. Með það í huga gekkst hann fyrir því að við keyptum þessi folöld haustið 1978. Skrifað af as 18.06.2010 07:4317. júníÍ gær var þjóðhátíðardagur Íslendinga. Það er full ástæða til þess að fagna fullveldi Íslands og halda hátíðlegan sérstakan þjóðhátíðardag. Það er vonandi að íslendingar geri sér líka grein fyrir því hvers virði það er að vera fullvalda þjóð og í hverju það fellst. Haft var eftir utanríkisráðherranum að hann taldi daginn í gær "heilla dag fyrir Ísland" þar sem Evrópusambandið var að samþykkja að hefja aðildarviðræður við Íslendinga. Það kom svo sem engum á óvart að það skyldi vera samþykkt. Aðildarviðræðurnar ganga svo út á það hvernig og með hvaða hætti Íslendingar ætla að laga sig að ESB og hvaða skilyrði önnur evrópuríki ætla að setja okkur. Hér í Flóanum var þjóðhátíðardagurinn haldinn hátiðlegur með hefðbundum hætti. Að venju varði ég hluta úr deginum við hátíðarhöld í og við Þjórsárver. Umf. Vaka stóð fyrir íþróttamóti barna á íþróttavellinum og Kvennfélag Villingaholtshrepps stóð fyrir reiptogi og pokahlaupi. Fallkonan flutti sitt ávarp og gestir hátiðarinnar gæddu sér á þeim veisluföngum sem boðið var upp á. Skrifað af as 15.06.2010 07:421. fundur nýkjörinnar sveitarstjórnarNý kjörin sveitarstjórn Flóahrepps kom saman til fundar í gærkvöldi í fyrsta skipti. Aðalverkefni fundarins var að kjósa í embætti, nefndir og fulltrúa Flóahrepps hjá hinum ýmsu stofnunum og samstarfsverkefnum. Ég var kjörinn oddviti með öllum 5 atkvæðum sveitarstjórnarmanna og þakka ég það mikla traust sem mér er sýnt með því. Árni Eiríksson á Skúfslæk var kjörinn varaoddviti. Formaður fræðslunefndar var kjörinn Elín Höskuldsdóttir á Galtastöðum og formaður atvinnu- og umhverfisnefndar var kjörinn Heimir Rafn Bjarkason í Brandshúsum Atvinnu- og umhverfisnefnd er ný nefnd hjá sveitarfélaginu. Hún verður til með sameiningu á Umhverfisnefnd og Atvinnu- og ferðamálanefnd, auk þess sem henni er ætlað að taka að sér samgöngumál sem á síðasta kjörtímabili heyrði beint undir sveitarstjórn. Á fundinum í gær var einnig samþykkt að ráða Margréti Sigurðardóttir áfram sem sveitarstjóra næstu fjögur árin. Það er mikill fengur fyrir sveitarfélagið að njóta hennar starfa áfram. Það er einnig mikill sparnaður á tíma og peningum að þurfa ekki að fara í það verkefni að finna nýjan sveitarstjóra og koma honum inn í starfið eins og mörg sveitarfélög standa í núna um þessar mundir. Ég er mjög ánægur með þann áhuga sem mér finnst fólk almennt hafa á því að vinna fyrir sveitarfélagið. Ég hef undanfarna dag rætt við fjölda fólks um að taka að sér að starfa í nefndum fyrir sveitarfélagið og fengið góðar viðtökur. Skrifað af as 10.06.2010 07:47RigningÞað er loksins farið að rigna. Þetta er kærkomin rigning en það sem af er þessu sumri og í allt vor hefur verið mjög þurrt í veðri. Það er orðin árviss viðburður að þurrkar séu hér til trafala og finnst mér eins og það séu ansi breyttir tímar. Ég man mikið frekar eftir því í gegnum Nú eru breyttir tímar. Endalaus blíða alla daga. Lítill sem enginn jarðklaki en sáralítil úrkoma. Skortur á úrkomu hefur ekki aðeins áhrif á gróður. Þurrkurinn hefur einnig haft áhrif á vatnsból bæði fyrir menn og skepnur. Skrifað af as 07.06.2010 07:43Hver er virkjanasinni og hver er virkjanaandstæðingur?Í fréttum af úrslitum kosninganna hér í sveit er því gjarnar slegið upp að hér hafi virkjanasinnar unnið stóran kosningasigur. Ekki er ég nú viss um að við öll sem gáfum kost á okkur á R listann skilgreinum okkur sem einhverja "virkjanasinna" þó svo að við vissulega höfum fallist á að gera ráð fyrir Urriðafossvirkun á aðalskipulaginu og ætlum að vinna áfram í samstarfi við Landsvirkun um mótvægisaðgerðir vegan hennar. Virkjanamál eru einfaldlega flóknari en svo að hægt sé að skipta fólki upp í virkjanasinna annarsvegar og virkjanaandstæðinga hinsvegar eins og mér finnst fjölmiðlar gjarnan vilja gera. Þó fallist sá á Urriðafossvirkjun er ekki þar með sagt að þá vilji menn virkja skilyrðislaust alls staðar þar sem því verður við komið. Eins er ekki hægt að ganga út frá því að allir þeir sem ekki vilja að Urriðafossvirkun verði byggð séu allfarið á móti því að orkan í fallvötnum og/eða í iðrum jarðar sé virkuð yfirleitt.
Skrifað af as 03.06.2010 07:55Fjör í FlóanumUm síðustu helgi var haldinn hér í sveit hátíðin "Fjör í Flóanum. Félagsheimilin í Flóahreppi hafa haldið þessa hátíð síðast liðin fimm ár um mánaðarmótin maí/júní. Þátttaka og fjöldi gesta hefur verið vaxandi ár frá ári og sýnist mér að þetta sé viðburður sem komi til með að vera hér árlega áfram. Tilgangur með svona hátíð er kannski tvíþættur. Annars vegar að kynna þá starfssemi og þjónustu sem hér er boðið upp á. Hinsvegar að íbúar sveitarfélagsins geri sér dagamun saman í upphafi sumars. Þeir viðburðir á hátíðinni sem ég kom á voru vel sóttir og mér skilst að svo hafi verið með flest atriði hátíðarinnar. Veðrið var með eindæmum gott og er það ótvíræður kostur á svona hátíð. Á föstudeginum var ég viðstaddur opnunnar atriði hátíðarinnar í Þjórsárveri. Þar var búið að setja upp heilmikla sýningu á verkum nemenda í Flóaskóla auk þess voru sýnd atriði úr söngleikum "Grease" sem nemendur sýndu með eftirminnanlegum hætti fyrr í vetur. Á föstudagskvöldið stóð Umf. Vaka fyrir kvöldvöku á íþróttavellinum við Þjórsárver þar sem fjölmenni var. Auk þess sem grillað var saman, flutti Leikdeild Umf. Vöku leikþáttinn "Ýsa varð það heillin" og keppt var í reiptogi..... Man ekki allveg hvernig það endaði. Á laugardeginum var opið hús í nýbyggingunni við Flóaskóla þar sem ég fyrir hönd sveitastjórnar, Gestur í Smíðanda fyrir hönd verktakans og Kristín skólastjóri tókum á móti gestum og sýndum þeim bygginguna. Skólinn bauð upp á kaffisopa í anddyri nýbyggingarinnar og smákökur voru í boði 8. bekkinga. Nokkur fjöldi gesta kom og fannst mér fólki lítast vel á hvernig til er að takast með þessa byggingu og almenn ánæga með þær breytingar sem hér er verið að gera á starfsemi skólanns. Á laugardagskvöldið var kvöld- og kosningavaka í Þingborg. Á sunnudeginum kom ég m.a. á fjölskylduskemmtun í Félagslundi sem var mjög vel sótt. Lögð var áhersla á að vera með dagskrá fyrir börn og sá ég ekki betur en heimsókn þeirra "Skoppu og Skrítu" hafi líkað vel í þeim aldurshóp. Vil ég þakka rekstrarstjórn og húsvörðum félagsheimilanna fyrir vel skipulagða hátíð og skemmtunina um helgina. Skrifað af as
Flettingar í dag: 176 Gestir í dag: 33 Flettingar í gær: 836 Gestir í gær: 166 Samtals flettingar: 190488 Samtals gestir: 33829 Tölur uppfærðar: 2.4.2025 08:23:53 |
clockhere Eldra efni
Í Flóanum Nafn: Aðalsteinn SveinssonFarsími: 8607714Tölvupóstfang: kolsholt@islandia.isHeimilisfang: Kolsholti IStaðsetning: FlóahreppurHeimasími: 4863304Tenglar |
© 2025 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is