Í Flóanum |
||
Færslur: 2011 Október31.10.2011 07:10Daginn tekur að styttaOktóber er nú að renna sitt skeið og framundan eru myrkustu vikur ársins. Tíðafarið undanfarið hefur heldur verið til þess fallið að minna mann á skammdegið framundan. Það er aðallega boðið upp á rigningu og rok flesta daga. ![]() Nóg er af verkefnum samt að fást við. Þessi mánuður hefur að vísu mikið farið á fundarsetur hjá mér. Nú síðast var Ársþing sunnlenskra sveitarfélaga en það var í Vík nú á föstudag og laugardag í siðustu viku. Ég fór reyndar austur strax á fimmtudag vegna stjórnarfundar hjá SASS sem haldinn var þá í tengslum við þingið. Hér á bæ er búið að slátra öllu fé sem á að slátra þetta haustið. Hrútar og lömb eru komin á hús. Ærnar verða teknar einhvern tíman á næstu vikum eða þegar það hentar rúningsmanninum að koma hér. Búið er að sleppa reiðhrossunum og því lítið um útreiðar þessa dagana. Talsvert er borið af kúm í fjósinu eftir að burður hófst um mánaðarmótin ág.-sept. og hefur það að mestu gengið prýðilega. Eins og undanfarin ár þá stendur rekstrarstjórn félagsheimilanna í Flóahreppi fyrir "Tónahátíð" í haust. Hátíðin saman stendur af þremur viðburðum hvert í sínu félagsheimilinu í sveitarfélaginu. Byrjað var í Félagslundi 1. október s.l á tónleikum með lögum Oddgeirs Kristjánssonar úr Vetsmanneyjum. 15. október var síðan leikþátturinn "mamma ég" sýndur í Þjórsárveri ásamt því sem heimamaðurinn Sigurður Ingi Sigurðsson var með uppistand. Núna n.k. laugardagskvöld 5. nóv verður Helgi Björnsson og "Reiðmenn vindanna" í Þingborg svo með stórtónleika. Það er ástæða til þess að hvetja fólk til þess að láta það ekki fram hjá sér fara. ![]() Skrifað af as 24.10.2011 20:36Baráttan um rusliðEitt af verkefnum sveitarfélaga er að sjá til þess að hægt sé að losna við rusl á viðurkenndan og löglegann hátt. Lengst af var það víðast hvar gert með þeim hætti að öll efni sem einstaklingar og fyrirtæki töldu sig ekki hafa not fyrir og þurftu að losa sig við var flokkað sem rusl og urðað á vegum sveitarfélaganna. Skrifað af as 16.10.2011 07:16FjármálÞessar vikurnar brjóta sveitarstjórnarmenn heilann um fjármál sem aldrei fyrr en í vikunni sat ég fjármálaráðstefnu sveitarfélaga í Reykjavík. Vinna sveitarstjórnarmanna snýst nú kannski eingöngu um fjármál. Verkefnið er að nýta skattfé sem sveitarfélögum tilheyrir sem allra best til hagsbóta fyrir íbúana. Undanfarið höfum við hér hjá Flóahrepp verið að skoða rekstrarstöðu sveitarfélagsins á þessu ári og endurskoða fjárhagsáætlunina. Vinna við fjárhagsáætlun næsta árs er einnig að komast á skrið. Ljóst er að töluvert vantar upp á að fjárhagsáætlun þessa árs, eins og hún var samþykkt fyrir tæpu ári síðan, gangi upp. Ástæðan er fyrst og fremst launahækkanir vegna kjarasamningana sem gerðir voru á árinu. Tekist hefur bærilega að vera innan áætlunnar í öðrum rekstrarliðum þrátt fyrir mun meiri verðbólgu en reiknað var með. Á móti launahækkunum kemur að þær skila sér einnig að hluta í hærri útsvarstekjum. Framundan er haustfundur Héraðsnefndar Árnessýslu en þar eru fjárhagsáætlanir ýmissa stofnanna sem sveitarfélögin í Árnessýlsu reka saman afgreiddar. Fjárhagsnefnd Hérðasnefndar er þessa dagana að yfirfara tillögur að áætlunum sem forstöðumenn og stjórnir þessara stofnanna hafa lagt fram. Sjálfur á ég sæti í þessari fjárhagsnefnd en nefndin skilar svo áliti á Héraðsnefndarfundinum. Ársþing SASS er svo seinna á þessum mánuði en þar eru haldnir einir 5 aðalfundir. Á öllum þessum fundum er fjallað um og afgreidd fjárhagsáætlun fyrir viðkomandi stofnun. Þessar stofnanir eru Atvinnuþróunnarfélag Suðurlands, Skólaskrifstofa Suðurlands. Sorpstöð Suðurland, Heilbrigðiseftirlit Suðurlands og Samtök sunnlenskra sveitarfélaga. Til viðbótar verður einnig fjallað um áætlun fyrir stórt og mikið samstarfsverkefni sveitarfélaganna en það er þjónusta við fatlaðra á svæðinu. Í allar þessar áætlanir fer mikil vinna en ég er þeirra skoðunnar að nauðsynlegt sé að vanda hana eins og kostur er. Það er mikilvægt að sveitarfélög og stofnanir þeirra sníði sér stakk eftir vexti fyrirfram með vönduðum fjárhagsáætlunum. Skrifað af as 09.10.2011 07:28Byggið, þurkurinn, rigningin og loftárásirKornið var skorið hér á föstudagskvöldið. Eins og stundum áður þá hafa haustrigningarnar staðið uppskerustörfum í byggræktinni fyrir þrifum. Við bættist þetta árið að uppskera var sein á ferðinni vegna kulda og þurka í vor. Þannig hófst kornskurður hér í Flóanum u.þ.b. 10 dögum seinna þetta haustið en oft áður. Bærilega gekk að skera fyrstu dagana eftir að kornskurður hófst og voru menn nokkuð bjartsýnir að ná þokkalegri uppskeru vandræðalaust. En upp úr miðjum september fór haustrigningin sífellt að verða fyrirferðameiri. Liðu nú orðið heilu vikurnar án þess að hægt væri að skera því alltaf rigndi og rigndi. Þessu til viðbótar bættist nú önnur óværan við, því meðan á þessu stóð urðu akrarnir fyrir loftárásum. Sá alfriðaði fugl, álftin, sá sér nefnilega leik á borðri og nýtti sér vel það nægtar borð sem blasti nú við. Á meðan við kornbændur biðum þess að stytti upp svo hægt væri að uppskera byggið gekk hún skipulega til verka og át upp heilu hektarana. ![]() Það stytti loks upp nú vikunni og var þá ekki beðið boðanna. Þreskivélin sem Flóakorn ehf rekur fór af stað á þriðjudaginn og má segja að hún hafi gengið stanslaust dag og nótt til kl. 2:00 aðfaranótt laugardagsins er hún kláraði að slá akrana hér á bæ. Það stóð á endum að það skall á slaðveður aftur um það leiti sem hér var verið að klára síðustu fermetrana. Þá var búið á þessum tæpum 4 sólarhringum að slá tugi ha á 10 bæjum hér í Flóanum og Ölfusi. ![]() Það er alltaf góð tilfinning að vera búinn á ná uppskeru í hús. Þrátt fyrir nokkuð tjón er ég þokkalega sáttur með útkomuna. Þrátt fyrir tíðarfarið stóð akurinn ennþá mjög vel og ef álftinni hefði ekki verið til að dreyfa væri uppskeran vel í meðallagi þrátt fyrir allt. ![]() Skrifað af as
Flettingar í dag: 56 Gestir í dag: 10 Flettingar í gær: 836 Gestir í gær: 166 Samtals flettingar: 190368 Samtals gestir: 33806 Tölur uppfærðar: 2.4.2025 07:02:42 |
clockhere Eldra efni
Í Flóanum Nafn: Aðalsteinn SveinssonFarsími: 8607714Tölvupóstfang: kolsholt@islandia.isHeimilisfang: Kolsholti IStaðsetning: FlóahreppurHeimasími: 4863304Tenglar |
© 2025 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is