Í Flóanum |
||
Færslur: 2013 Maí31.05.2013 07:29VorVorið er skemmtilegur en annasamur tími. Þetta vorið hef ég lítið bloggað. Það ekki vegna þess að mér hafi fundist tilveran lítið áhugvert. Vorið er alltaf fullt af áhugverðum atvikum. Kornakrarnir voru hér unnir um mánaðarmótin aprí/maí. Bygginu var sáð 3. maí. 10 dögum síðar voru akranir að byrja að grænka og eru nú orðnir iðjagrænir yfir að líta. Annars hefur verið frekar kalt og hefur grasspretta, fram að þessu, verið mun seinni en undanfarin ár. Ekki er samt hægt að tala um einhver harðindi og nú tvo síðustu daga hefur grasið bæði á túnumm og útjörð þotið upp. Það styttist í slátt. ![]() Búið er að bera á ölll tún. Skítur var feldur niður í megnið að túnunum eins og undanfarin ár. Eftir er að vinna flög sem ætlunin er að sá í grasfræi í sumar. Sauðburði er nú að ljúka og hefur að mestu gengið vel. Helmingurinn af gemlingunum er að vísu geldur. Verður það sennilega að skrifast á annan kynbótahrútinn sem settur var á í haust og, eins og alltaf, miklar vonir voru bundar við. Óvíst er um framtíð hans í þessum bransa. ![]() Skrifað af as
Flettingar í dag: 56 Gestir í dag: 10 Flettingar í gær: 836 Gestir í gær: 166 Samtals flettingar: 190368 Samtals gestir: 33806 Tölur uppfærðar: 2.4.2025 07:02:42 |
clockhere Eldra efni
Í Flóanum Nafn: Aðalsteinn SveinssonFarsími: 8607714Tölvupóstfang: kolsholt@islandia.isHeimilisfang: Kolsholti IStaðsetning: FlóahreppurHeimasími: 4863304Tenglar |
© 2025 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is