Í Flóanum |
||
Færslur: 2014 Desember26.12.2014 21:19VeturÞað er vetrarlegt um að litast nú um jólin. Verkefni dagsins á þessu árstíma er eru fyrst og fremst gegningar, mjaltir kvölds og morgna og svo tilhleypingar. Þess á milli hefur maður það nokkuð rólegt um hátíðirnar. Við rákum tryppin og reiðhestana heim nokkrum dögum fyrir jól og gáfum öllum ormalyf. Þeim er nú svo gefið hey hér norðan við tún. Það líður að því að eitthvað verði tekið inn járnað. Það er ekki bara húsdýrunum sem gefið er hér á þessum bæ. Þegar jörð er undir snjó gefur Kolbrún smáfuglunum hér utan við eldhúsgluggan. Um leið og snjóar eru þeir mættir í mat þó í annan tíma verði maður ekkert var við þá. Síðustu daga hefur svo ein litil hagamús séð sér leik á borði og náð sér í aukabita með þeim. Ég vona að þið öll hafið átt ánæjulegar stundir nú um jól og óska ykkur gleðilegra jólarest. ![]() Skrifað af as 21.12.2014 21:55Jóla hvað!Ég ræddi við einn sveitunga minn í síma um daginn. Hann sagði að ég yrði að fara að breyta síðustu bloggfærslu. Það stóð á endum að ég var ekki fyrr búinn að fjalla um gott tíðafar að það breytti snögglega í ótíð og leiðindi. Það þarf nú kannski ekki að koma á óvart að það geri vetrarveður á þessum árstíma. En nú verður skammdegið ekki meira að sinni og á morgun byrjar daginn að lengja aftur. Það styttist til vors. ![]() Þess dagana er allt þjóðfélagið undirlagt að undirbúningi fyrir jólin. Þetta er að mörgu leyti skemmtilegur tími en stundum finnst manni keyra um þverbak. Ég hef reyndar aldrei skilið skemmtanagildið í því að versla. Það er því kannski ekki skrítið að auglýsingaflóðið og kaupæðið sem rennur á suma þessa dagana angri mig frekar en hitt. ![]() Sem betur fer á ég skilningsríka fjölskyldu svo ég þarf lítið að sinna þessum hluta jólaundirbúningsins. Ég tel það tillitsemi við mig en ekki vegna þess að aðrir fjölskyldu meðlimir hafi gaman af því að versla. Ég hef hingsvegar gaman af því að fylgjast með barnabörnnnum mínum taka þátt í undirbúningi jólanna. Í síðustu viku komum við Kolbrún í Lyngholt að tókum þátt í laufabrauðskurði með hóp afkomenda okkar. Þeir frændur Hjalti Geir í Lyngholti og Arnór Leví í Jaðarkoti tóku smá syrpu í laufabrauðskurðinum. Á fimmtudagskvöldið var okkur svo boðið á jólaskemmtun unglingastigsins í Flóakskóla. Það var að vanda stórkostlega flott sýning hjá unga fólkinu í sveitinni. Dagskránni lauk með frábæru tónlistaratriði frá tónlistarvali skólans. Þar söng Kolbrún Katla í Lyngholti tvö lög við undirleik félaga sinna. Sjálf spilaði hún einnig undir á píanó. ![]() Skrifað af as
Flettingar í dag: 56 Gestir í dag: 10 Flettingar í gær: 836 Gestir í gær: 166 Samtals flettingar: 190368 Samtals gestir: 33806 Tölur uppfærðar: 2.4.2025 07:02:42 |
clockhere Eldra efni
Í Flóanum Nafn: Aðalsteinn SveinssonFarsími: 8607714Tölvupóstfang: kolsholt@islandia.isHeimilisfang: Kolsholti IStaðsetning: FlóahreppurHeimasími: 4863304Tenglar |
© 2025 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is