Í Flóanum |
||
Færslur: 2018 Mars31.03.2018 12:06Lífshlaup langömmu.Langamma mín hét Kristín Jónsdóttir. Hún fæddist á Kotungsstöðum í Fnjóskadal í Suður-Þingeyjarsýslu árið 1869 þar sem foreldrar hennar voru í húsmensku. Faðir hennar var Jón Guðlaugsson ( 1834-1928) ættaður úr Fnjóskadal og Mývatnssveit. Móðir hennar var Helga Sigurðardóttir ( 1836-1908) úr Fnjóskadal. Árið sem yngsti sonur þeirra fæðist 1913 verða þeir atburðir i Hvammi í Þistilfirði, þar sem Ragnheiður dóttir Kristínar hefur alist upp, að hún hröklast frá bænum og fer til Þórshafanar. Frá þessu er sagt itarlega í Alþýðublaðinu í mars 1939. Frásögnin er birt í þremur tölublöðum sem framhaldsgrein og eru þær lýsingar hreint út sagt ótúlegar. Þarna virðist um að ræða einhverja stórkostlega reimleika sem virðast með einhverju móti tengjast Ragnheiði hálfsystir afa míns. Ragnheiður sem er 18 ára þarna fer til Þórshafnar. Bróðir hennar Guðlaugur Helgi kemur einnnig við sögu í þessari frásögn og er sagður til heimilis í Laxárdal en hann er 16 ára þegar þessir atburðir eiga sér stað. Þetta sama ár 1913 byggja þau Kristján Þórarinsson frá Laxárdal og Ingiríður Árnadóttir frá Gunnarsstöðum nýbýlið Holt í Þistifirði. Þangað er afa mínum komið í fóstur þá á 12 ári. Yngsti bróðir hans sem er fæddur þetta örlagaríka ár 1913 er einnig komið í fóstur. Þannig að heimilisaðstæður Kristínar og Eiríks, langömmu og langafa míns, hafa sennilega verið nokkuð bágbornar þegar þarna er komið sögu. Ég hef engar heimildir um hvað á daga þeirra hefur drifið síðar en Kristín lést 8 árum seinna þá 52 ára gömul. Eiríkur lést 1930 þá 57 ára gamall Skrifað af as
Flettingar í dag: 176 Gestir í dag: 33 Flettingar í gær: 836 Gestir í gær: 166 Samtals flettingar: 190488 Samtals gestir: 33829 Tölur uppfærðar: 2.4.2025 08:23:53 |
clockhere Eldra efni
Í Flóanum Nafn: Aðalsteinn SveinssonFarsími: 8607714Tölvupóstfang: kolsholt@islandia.isHeimilisfang: Kolsholti IStaðsetning: FlóahreppurHeimasími: 4863304Tenglar |
© 2025 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is