Í Flóanum |
||
Færslur: 2019 Janúar08.01.2019 23:27Pistill í ÁveitunaÁveitan er fréttabréf sem Ungmennafélagið Þjótandi í Flóahreppi gefur út í hverjum mánuði. Áveitan fer inn á öll heimili í sveitarfélaginu og einnig til annarra sem þess óska. Ég fékk áskorun um að skrifa pistil í Áveituna. Ég sendi inn eftirfarandi pistil sem birtist nú í fyrsta tölubl. þess árs. Gleðilegt ár
ágætu sveitungar og allir aðrir sem þetta lesa. Nú eftir nokkrar vikur eru liðin 50 ár frá því að ég kom hingað í Flóann í fyrsta skipti. Það var, ef ég man rétt, á Öskudaginn 1969 að ég kom hingað í Kolsholt með föður mínum ásamt fleirum að skoða aðstæður. Í framhaldi af þeirri heimsókn var jörðin keypt og við fluttum alkomin í austurbæinn í Kolsholti 15. maí 1969. Síðan þá hef ég búið hér. Ýmislegt hefur breyst á þessu 50 árum og nú er ég að verða kominn á þann aldur, að ég hef áráttu fyrir því að rifja upp gamla tíma. Sumarið 1969 var bæði kalt og votviðrasamt. Heyskapur gekk illa og heyfengur lélegur. Með þess tíma verkfærum og vélum var reynt að ná heyjum langt fram á haust. Um haustið byrjaði ég svo í Villingaholtsskóla. Skólastjórinn og eini kennarinn var hann Teddi (Theodór Kristjánsson). Teddi sá einnig um skólaaksturinn að hluta á móti Kristjáni í Forsæti (Kristján Gestsson). Það var bara ein skólastofa í skólanum og nemendur voru rúmlega 20. Þá voru 6 árgangar í skólanum sem skiptust í eldri og yngri deild. Ég og Þórarinn bróðir minn vorum í eldri deild. Við vorum í skólanum á mánudögum, miðvikudögum og föstudögum. Systur okkar þær EllaVeiga og Alda voru í yngri deild á þriðjudögum og fimmtudögum. Skólaskyldan var á þessum árum 8 ár. Nýbyrjað var að keyra elstu árgangana í Gangfræðaskólann á Selfossi til að ljúka sinni skólaskyldu. Í framhaldi af því var þá einnig möguleiki á að bæta við sig tveimur árum í skólanum og taka það sem þá hét gagnfræðapróf eða einu ári og taka s.k. landspóf og komast þá beint í Menntaskóla. En það gerðu nú bara þeir allra gáfuðustu sem ætluðu svo að taka stúdentspróf. Síðan þá hefur ýmislegt breyst. Heyskapinn er hægt að taka á örfáum dögum, jafnvel í óþurrka sumrum eins og síðasta sumar var. Nemendur í skólanum eru nú á annað hundrað og allur grunnskólinn er í sveitinni, alls 10 árgangar. Ég hef verið svo heppin að hafa getað fylst með hvernig þetta samfélag hefur hægt og bítandi þróast. Ég upplifi þetta sem viðstöðulausa þróun án mikilla umskipta eða kollsteypna. Þjóðfélagið allt hefur tekið miklum breytingum á þessari hálfu öld með aukinni tækni og velsæld. Íbúar í Flóanum hafa að mínu mati verið nokkuð virkir í mótun samfélagins hér. Eins og um marga sveitunga mína var ég virkur félagi í Ungmennafélaginu starx á unglingsaldri. Ungmennfélögin hér í sveit hafa til langs tíma verið mjög virk og verið áhrifavaldar í samfélaginu. Það sama má reyndar segja um flest félög sem hér starfa s.s. kvenfélög, búnaðarfélg, og fl. félög. Mér persónulega finnst það hafa verið forréttindi að fá koma að þessu. Mér finnst ég hafa verið þáttakandi í þessu ferli nánast alla tíð. Fyrst sem félagsmaður og svo stjórnarmaður í ungmennafélaginu og síðan einnig búnaðarfélaginu. Einnig sem almennur íbúi og svo sem sveitastjórnarmaður um tíma. Þetta samfélag hér í sveit er gott og mestu verðmæti þess eru virkt mannlíf sem hefur haft áhuga á samfélaginu og þróun þess. Ég bind vonir við að svo verði áfram um ókomna tíð. Til þess að svo verði þurfum við að halda áfram að nenna að taka virkan þátt í þessu með einum eða öðrum þætti. Nú er árið 2018
runnið sitt skeið og árið 2019 tekið við. Ég óska sveitungum mínum öllum gæfu
og gengis á þessu nýja ári og þakka allt samstarf og alla samferð liðinna ára.
Ég veit að hjá okkur öllum skiptast á skin og skúrir á lífsins leið. Það er
svipað og veðurfarið er hér í Flóanum. Á undanförnum misserum finnst mér eins og óvenjulega mikið af alvarlegum veikindum hafi komið upp hér í sveit. Nokkrar fjölskyldur hafa skyndilega þurft að horfast í augu við gerbreyttan veruleika og að takast á við krefjandi verkefni vegna mjög alvarlegra veikinda sem upp hafa komið. Þessum sveitungum mínum sendi ég sérstakar nýárskveðjur. Bæði þeim sem glíma við veikindin og fjölskydum þeirra. Ég á enga ósk heitari en öllu þessu fólki vegni vel á nýju ári. Að lokum vil ég skora á núverandi húsfreyjuna í Gamla bænum í Kolsholti að skrifa næsta pistil. Bænum sem ég flutti í fyrir 50 árum. En það er hún dóttir mín Erla Björg Aðalsteinsdóttir. Skrifað af as
Flettingar í dag: 176 Gestir í dag: 33 Flettingar í gær: 836 Gestir í gær: 166 Samtals flettingar: 190488 Samtals gestir: 33829 Tölur uppfærðar: 2.4.2025 08:23:53 |
clockhere Eldra efni
Í Flóanum Nafn: Aðalsteinn SveinssonFarsími: 8607714Tölvupóstfang: kolsholt@islandia.isHeimilisfang: Kolsholti IStaðsetning: FlóahreppurHeimasími: 4863304Tenglar |
© 2025 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is