Í Flóanum |
||
Færslur: 2019 Júlí17.07.2019 23:26Þegar ég sá hana Rósu beraÉg get ekki látið
það vera að segja ykkur
frá því Þegar ég sá hana
Rósu bera - !
Ég var dálítið á
því En við því var
ekkert að gera.
Grasið var farið
að spretta og laufið að
grænka á trjánum. Sólin lét
geislana detta Á mig, þar sem ég
læddist á tánum og reikaði í
hverju spori á þessu himneska
vori
Úti var dýrlegt
að ganga og finna jörðina
anga Af gróðri, í alls
konar litum og daunillri
brennivínsstækju, sem lagði frá
mínum vitum.
Ég hefði getað
lagst með hvaða skækju sem orðið hefði á
mínum vegi á slíkum
góðvirðidegi.
Ég var í ofsalega
góðu skapi og söng eins og
vitlaus maður -. Ég átti ekki að
láta eins og api, því að þetta var
launhelgur staður.
Ég fór að ganga
hraðar og hraðar og neytti krafta,
sem drottinn gaf mér -. En allt í einu
nam ég staðar og það rann
hreinlega af mér, því framundan, á
grænu engi sá ég það, sem ég
minnist lengi:
Á bak við runna
lá hún Rósa - -. Það stirnaði svo
fallega á húðina ljósa og ég líktist
mest hræddum héra þegar ég sá hana
bera - -.
Ég læddist
varlega nær og nær og man það, eins
það hefði gerst í gær, og þar, sem hún
lá með útglennta fætur, skalf ég eins og
lauf í vindi en hafði þó á
henni stöðugar gætur.
Ég losaði bæði um
flibba og bindi og þurrkaði
svitann af andliti mínu. Er ég starði á
Rósu í látleysi sínu - - -.
---------
Allt gekk nú í
einum hvelli grænum því að Rósa var
besta kýrin á bænum. Og kálfurinn sem
hún þarna átti. baulaði eins og
hann framast mátti Muuuuu, muuuuu muuööööö !! (stolið af internetinu..höf. Kálhaus. ) Skrifað af as
Flettingar í dag: 176 Gestir í dag: 33 Flettingar í gær: 836 Gestir í gær: 166 Samtals flettingar: 190488 Samtals gestir: 33829 Tölur uppfærðar: 2.4.2025 08:23:53 |
clockhere Eldra efni
Í Flóanum Nafn: Aðalsteinn SveinssonFarsími: 8607714Tölvupóstfang: kolsholt@islandia.isHeimilisfang: Kolsholti IStaðsetning: FlóahreppurHeimasími: 4863304Tenglar |
© 2025 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is