Í Flóanum |
||
Færslur: 2020 Júlí27.07.2020 08:29Skál fyrir SteinaMargar sögur hafa verið sagðar af Ólafi Ketilssyni sérleyfishafa (Óla Ket). Meðal annars hef heyrt að einhverju sinni þegar hann átti stóafmæli hafi hann boðið til mikilla veislu. Öllum helstu framámönnum Suðurland var boðið. Þetta var á þeim tíma þegar Þorsteinn Pálsson var nýtekinn við formennsku í Sjálfstæðisflokkknum og frambjóðandi flokksins á Suðurlandi Í veislunni var boðið upp á kótilettur með kartöflum og svo ávaxtagraut í eftirrétt. Þegar veislugestir voru ný byrjaðir á grautnum kallar Óli Ket upp: "Skál fyrir steina". Standa þá allir veislugestir upp og lyfta glösum og segja "skál fyrir steina". Allir héldu að nú vildi gestgjafinn skála fyrir væntanlegum 1. þingmanni Suðurlands Þorsteini Pálssyni sem var þar á meðal gesta. Svo setjast menn bara aftur og halda áfram með grautinn. En þá kallar gestgjafinn aftur upp "Skál fyir steina". Og aftur standa allir upp og lyfta glösum og skála fyriir formanni Sjálfstæðisflokksins og væntanlegum 1. þingmanni kjördæmisins. Veislugestir eru svo ný sestir aftur niður til að halda áfram að slafra í sig grautinn, þegar enn á ný Óli Ket kallar og nú: "hvernig er það er ekki hægt að koma með skál fyrir sveskjusteinana úr grautninum?" Skál fyrir Steina! Skrifað af as
Flettingar í dag: 176 Gestir í dag: 33 Flettingar í gær: 836 Gestir í gær: 166 Samtals flettingar: 190488 Samtals gestir: 33829 Tölur uppfærðar: 2.4.2025 08:23:53 |
clockhere Eldra efni
Í Flóanum Nafn: Aðalsteinn SveinssonFarsími: 8607714Tölvupóstfang: kolsholt@islandia.isHeimilisfang: Kolsholti IStaðsetning: FlóahreppurHeimasími: 4863304Tenglar |
© 2025 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is