Í Flóanum |
||
25.05.2012 23:40SauðburðurNú er sauðburður hér á bæ langt kominn og hefur bara gengið nokkuð vel. Langflestar eru tvílembdar en það er einmitt óskastaðan. Vandræði er með einn gemling sem ekki vill annað lambið sitt og eitt móðurlaust lamb sitjum við uppi með. Hún Aldís Tanja í Jaðarkoti hefur verið áhugasöm við að fylgjast með sauðburðinum. Dagana áður en hann byrjaði var hún mætt í fjárhúsið um leið og hún kom heim úr skólanum. Hún hélt þar uppi vökulu eftirliti. Síðan þegar ærnar fóru að bera lét hún mig vita um leið og hún var vör við að einhver ærin var að byrja. Það var svo í gær að hún Öskubuska 10-361 bar en það er kindin hennar Aldísar. Hún kom með tvo svarta hrúta. Það er nú gaman að geta verið stoltur fjáreigandi. Skrifað af as Flettingar í dag: 1332 Gestir í dag: 236 Flettingar í gær: 175 Gestir í gær: 25 Samtals flettingar: 133167 Samtals gestir: 24410 Tölur uppfærðar: 29.4.2024 15:33:21 |
clockhere Eldra efni
Í Flóanum Nafn: Aðalsteinn SveinssonFarsími: 8607714Tölvupóstfang: kolsholt@islandia.isHeimilisfang: Kolsholti IStaðsetning: FlóahreppurHeimasími: 4863304Tenglar |
© 2024 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is