Í Flóanum

Færslur: 2012 Apríl

29.04.2012 07:31

Skipulagsmál

Árlega stendur Skipulagsstofnun fyrir samráðsfundi með sveitarfélögunum i landinu. Ég sat slíkan fund núna s.l. fimmtudag og föstudag austur á Hellu ásamt öðrum sveitarstjórnarfulltrúum og sveitarstjóra Flóahrepps.

Skipulagið er helsta stjórntæki sveitarstjórnar og um leið helsti samráðsvettvangur við almenna íbúa. Þó það sé skýrt tekið fram í skipulagslögum að sveitarstjórnir fari með skipulagsvald hvert í sínu sveitarfélagi er málið ekki svo einfalt að það sé eingöngu rætt og afgreitt inn á borði sveitarstjórnarinnar.

Samráðsferli við almenning er bundið í lögum og þó ég sé alls ekki á móti því að það sé mikið og gott, er um bæði tímafrekt og dýrt ferli að ræða. Það væri vel þess virði að velta fyrir sér hvort hægt væri að nota bæði tíma og pening betur nú er. Hver tillaga að nýju skipulagi eða breyting á eldra skipulagi er marg kynnt og auglýst. Í hvert sinn, á öllum stigum skipulagsferilsins, þarf að útbúa gögn til þess að fjalla um og kynna.

Fyrir utan kostnað við gagnaútbúnað, auglýsingakostnað, og vinnu við umsýslu á öllu þessu kynningarferli er um gríðalega tímafrekt ferli að ræða. Það veitir því ekki af að hafa tímann fyrir sér ef menn eru að huga að framkvæmdum. Þá skiptir litlu máli hvort um stóriðjuver eða útihús í sveit er um að ræða.

Ríkisvaldið sjálft hefur einnig talsverð áhrif á skipulagsvinnu sveitarfélaga. Ýmis lagasetning bindur hendur sveitarstjórna í sinni skipulagsvinnu. Í sumum tilfellum er ríkið með skipulagsvaldið á sinni könnu þrátt fyrir það sem stendur í skipulagslögum.

Í því sambandi má nefna áætlum um vernd og nýtingu náttúruauðlinda.s.k. rammaáætlun. Í lögum um hana er kveðið á um að sveitarstjórnum beri að taka tillit til hennar í sínu skipulagi og þau hafa til þess ákveðin frest frá því að Alþingi afgreiðir hana. Það er reyndar fyrst og fremst talað um að gera verði ráð fyrir þeim virkjanakostum sem flokkaðir eru í nýtingaflokk í áætluninni á skipulagi. Það er óljósara í lögunum með hvaða hætti á að fara með virkjanakosti sem verða í bið flokki og jafnvel verndarflokki.

Það gengur hægt að afgreiða þessa rammáætlun og á meðan eru sveitarfélög í óvissu um hvernig þau eiga að haga sinni skipulagsvinnu. Það er annað sem einnig er í óvissu og stendur upp á ríkisstjórn þessa lands en það er að nú eru rúmlega tvö ár frá því að ný skipulagslög gengu í gildi en enn á eftir að setja reglugerð við lögin.

Illmögulegt er að standa í aðalskipulagsgerð eða endurskoðun á aðalskipulagi vegna þessa ástands. Í nýju skipulagslögunum er talað um ýmsar breytinga m.a. um flokkun lands. Í þeirri vinnu sem í gangi hefur verið við gerð reglugerðar er reynt að útfæra þetta. Á meðan niðurstaða liggur ekki fyrir veit enginn hvernig á að vinna eftir nýjum lögum. emoticon 
 

20.04.2012 07:24

Gleðilegt sumar

Í tilefni þess að í gær var sumardagurinn fyrsti voru heyvinnutækin tekin til kostana seinnipartinn í gær. Ekki var það nú svo, þrátt fyrir að það vorar snemma, að hér væri kominn slægja á túninn. Hér var frekar um það að ræða að verið var að klára heyskapinn frá því í fyrra sumar. emoticon



Hálmurinn á kornökrunum, sem aldrei var hægt að þurrka í haust, var nú orðinn brauðþurr og því tímabært að taka hann saman. Það mátti ekki seinna vera því nú er nauðsynlegt að fara að vinna akrana og sá til uppskeru á þessu ári.





Annars var hér haldið upp á sumarkomuna með hefðbundnum hætti. Umf. Vaka stóð að vanda fyrir viðavangshlaupi á Þjórsárbökkum. Íbúar, bæði fyrrverandi og núverandi, úr gamla Villingholtshreppnum fjölmenntu eins og svo oft áður. Yngstu þátttakendur voru á fyrsta ári en sá elsti áttræður. Alls held ég að þátttakendur hafi verið hátt 60 sem fóru þennan rúma kílómetra saman í vorblíðunni í gær.



Ég tók að sjálfsögðu þátt í hlaupinu. Það gerðu einnig flest mín barnabörn og slógst ég í för með þeim yngsta, honum Hrafnkatli í Jaðarkoti. Hann var gaf ekkert eftir í sínu fyrsta hlaupi á sumardagin fyrsta og ég hef trú á að þetta hafi ekki verið það síðasta hjá honum.  

Sigurverarar í víðavangshlaupinu voru þau frændsystkini frá vesturbænum í Kolsholti. Í kvennaflokki Sólveig Larsen og í karlaflokki Þorgils Kári Sigurðsson. Glæsilegur árangur hjá þessu unga íþróttafólki og óska ég þeim til hamingju með það. emoticon

15.04.2012 07:23

Kvenfélagið

Það er kunnara en frá þurfi að segja að í hverju samfélagi er öflugt og lifandi kvenfélag bráð nauðsynlegt. Þetta er staðreynd sem við hér í Flóahreppi erum vel meðvituð um. Hér eru starfandi hvorki meira en minna þrjú öflug kvenfélög.

Kvenfélag Villingaholtshrepps er eitt þessarra kvenfélaga. Það hefur staðið fyrir öflugri starfsemi hér sveit um áratugi. Félagskonur eru á öllum aldri. Þó að þetta sé kannski ekki fjölment félag er um lifandi félag að ræða þar sem tekist er á við hin fjölbreyttustu verkefni.

Á aðalfundi Búnaðarfélags Villingaholtshrepps sem haldin var í Þjórárveri á föstudagskvöldið s.l. var afreksbikar félagsins veittur. Þessi bikar var gefinn búnaðarfélaginu af Búnaðarsambandi Suðurlands á 100 ára afmæli félagsins. Hann er veittur, hverju sinni, þeim aðilum í Villingaholtshreppnum hinu forna sem á einn eða annan hátt telst hafa skarað fram úr að einhverju leiti. Um getur verið að ræða atriði á sviði félagsmála, ræktunnar, íþrótta, lista eða annarra menningarmála.

Það var Kvenfélag Villingaholtshrepps sem hlaut bikarinn að þessu sinni er vel að honum komið. Ég óska félaginu til hamingu með það og ekki síður öflugt starf. emoticon

12.04.2012 07:17

Útreiðartúr

Það atvikaðist svo að ég  komst í ágætan útreiðatúr á föstudaginn langa en þá var riðið út með Selfyssingum í Árborgarhreppi. Tilefnið var, að þá var með formlegum hætti, tekinn í notkunn brú á reiðleiðinni úr Tjarnarbyggð niður á Eyrabakka. Hestamenn í Flóanum riðu að brúnni  beggja megin frá til þes að vera viðstaddir athöfnina.

Það er reiðveganefnd hestamannfélagsins Sleipnis sem á veg og vanda að þessari brúargerð. Nefndin, með Einar í Egilsstaðakoti í broddi fylkingar, hefur  unnið ötullega að því að opna reiðleiðir og leggja reiðvegi vítt og breitt um allan Flóann. Verkefnið er risastórt en reiðveganefndin, m.a. með styrk frá sveitarfélögunum, er þegar komin af stað með ýmis verkefni sem m.a. miða að því að koma eitthvað af hestaumferðinni  frá akvegunum.

Þar sem Jón í Lyngholti hafði í vetur aðstoðað Einar í því að koma áður nefndri brú fyrir þótti tilheyra að hann mætti við vígluna. Við setum reiðhrossin á kerru og keyrðum með þau að "Stóra-Aðalbóli" í Tjarnarbyggðinni. Þaðan riðum við með með öðrum hestamönnum af svæðinu að  brúnni. Þessi  brú, sem er gömul trébrú frá vegagerðinni, var sett á stóra áveituskurðinn sem grafin var á sínum tíma á mörkum Sandvíkurshrepps hinum forna og Eyrabakkahrepp hinum forna.

Mikill fjöldi var samankominn við brúna bæði af hestum og mönnum.  Að ræðuhöldum og borðaklippingum loknum var riðið til baka. Allur hópurinn stoppaði síðan hjá þeim Maddý og Jónasi í Tjarnarbyggðinni og þáðar veitingar.  Að þvi loknu riðum við Jón áfram með þeim sem komu frá Selfossi þangað upp eftir.

Ekki töldum við viturlegt að halda mikið lengra áfram þar sem við vorum báðir einhesta og  u.þ.b. 20 km eftir til að komast heim.  Hrossin voru því sett á kerru aftur og keyrð heim. Þetta var hin skemmtilegasti túr í fallegu veðri og góðra vina hópi. emoticon 

06.04.2012 07:39

"Vertu til, því vorið kallar á þig".

Nú bregður svo við, eftir leiðinda tíð síðasta hálfa árið, að það brestur á með vorblíðu á Einmánuði. Gróður er allur að lifna og jörð er þur og klakalaus sem á sumardegi sé.

Ég er nú samt orðin eldri en það, að ég geri mér ekki grein fyrir, að það eru meiri líkur en minni að það eigi eftir að gera kuldakast áður en sumar kemur. Það breytir því ekki að það er alltaf kærkomð þegar byrjar að vora snemma. emoticon

Allvega er upplagt að nota færið og koma því í verk sem ekki var hægt að gera í haust vegna ótíðar og bleytu. Þar á ég við að klára að kýfa og jafna til í skurðarstykkjum sem við ætlum til ræktunnar á komandi sumri. Það er einnig rétt reyna að þurka eitthvað af þeim hálmi sem ekki var hægt að ná í haust áður en farið verður að plægja akrana.



Það er líka ekkert því til fyrirstöðu að hefja jarðvinnslu að fullu, Ég ráðstafaði hluta úr gærdeginum í að tæta nýtt land sem við höfum áhuga á að sá í í vor. Nú er einnig hægt að komast um öll tún og erum við þegar byrjaðir á að koma skítum á túnin.




  • 1
Flettingar í dag: 145
Gestir í dag: 45
Flettingar í gær: 201
Gestir í gær: 62
Samtals flettingar: 131522
Samtals gestir: 24107
Tölur uppfærðar: 26.4.2024 22:56:40
clockhere

Í Flóanum

Nafn:

Aðalsteinn Sveinsson

Farsími:

8607714

Heimilisfang:

Kolsholti I

Staðsetning:

Flóahreppur

Heimasími:

4863304

Tenglar