Í Flóanum

26.12.2014 21:19

Vetur

Það er vetrarlegt um að litast nú um jólin. Verkefni dagsins á þessu árstíma er eru fyrst og fremst gegningar, mjaltir kvölds og morgna og svo tilhleypingar. Þess á milli hefur maður það nokkuð rólegt um hátíðirnar.

 
Við rákum tryppin og reiðhestana heim nokkrum dögum fyrir jól og gáfum öllum ormalyf. Þeim er nú svo gefið hey hér norðan við tún. Það líður að því að eitthvað verði tekið inn járnað.



Það er ekki bara húsdýrunum sem gefið er hér á þessum bæ. Þegar jörð er undir snjó gefur Kolbrún smáfuglunum hér utan við eldhúsgluggan. Um leið og snjóar eru þeir  mættir í mat þó í annan tíma verði maður ekkert var við þá. Síðustu daga hefur svo ein litil hagamús séð sér leik á borði og náð sér í aukabita  með þeim.

Ég vona að þið öll hafið átt ánæjulegar stundir nú um jól og óska ykkur gleðilegra jólarest. emoticon
Flettingar í dag: 14
Gestir í dag: 7
Flettingar í gær: 1740
Gestir í gær: 142
Samtals flettingar: 137847
Samtals gestir: 25193
Tölur uppfærðar: 9.5.2024 00:50:54
clockhere

Í Flóanum

Nafn:

Aðalsteinn Sveinsson

Farsími:

8607714

Heimilisfang:

Kolsholti I

Staðsetning:

Flóahreppur

Heimasími:

4863304

Tenglar