Í Flóanum

Færslur: 2014 Október

24.10.2014 22:36

Braggablús

Fyrr í þessum mánuði fór ég ásamt nokkrum félögum mínum norður á Akureyri. Við tókum að okkur verkefni þar. Þetta tók heila 12 daga með milliferðum en eins og stundum áður varð verkið heldur meira en bjartsýnisspár gerðu ráð fyrir. Maður þarf alltaf að gera ráð fyrir  því. emoticon



Verkefnið var að rífa tvo stóra bragga sem þurftu að víkja fyrir nýjum byggingum. Samtals voru þessir braggar um 1100 m2 að grunnfleti.  



Þó verkið væri stórt gekk það ágætlega enda öflugur hópur manna með mér í þessu ævintýri. Sem sannir umhverfissinnar og í anda endurnýtingar og endurvinnslu hirtum við allt nýtanlegt efni og fluttum með okkur suður.













Næsta verkefni verður svo að koma öllu þessu efni  not en það eru áform um að byggja nokkur hús úr þessu. emoticon
  • 1
Flettingar í dag: 42
Gestir í dag: 10
Flettingar í gær: 149
Gestir í gær: 47
Samtals flettingar: 131568
Samtals gestir: 24119
Tölur uppfærðar: 27.4.2024 04:17:42
clockhere

Í Flóanum

Nafn:

Aðalsteinn Sveinsson

Farsími:

8607714

Heimilisfang:

Kolsholti I

Staðsetning:

Flóahreppur

Heimasími:

4863304

Tenglar