Í Flóanum |
||
26.04.2010 07:46RusliðEitt af þeim verkefnum sem mest hafa vaxið hjá sveitarfélögum á síðustu árum er sorphirða og sorpeyðing. Frá árinu 1995 hafa sunnlendingar getað losnað við allt sitt sorp á til þess að gera ódýran hátt í Kirkjuferjuhjáleigu þar sem það hefur verið urðað. En 1. desember s.l. var þessum sameiginlega urðunarstað sveitarfélaganna á Suðurlandi lokað samkvæmt samkomulagi við Sveitarfélagið Ölfus frá árinu 2004. Síðan þá hefur ruslinu verið ekið til Reykjavíkur þar sem það hefur síðan verið urðað í Álfsnesi. Kosnaður hefur stórlega aukist bæði vegna lengri flutninga og mikið hærri kosnaðar við urðunina.
Niðurstaðan varð sú að taka hér upp í samvinnu við Íslenska Gámafélagið þriggja tunnu sorpflokkunarkerfi. Kerfið sem byggir á þátttöku íbúa svæðisins hefur gengið mjög vel og sá árangur sem að var stefnt hefur náðst. Ávinningur er margvíslegur og má t.d. nefna:
Ýmislegt fleira jákvætt væri hægt að nefna í þessu sambandi en ég er mjög stoltur af þessu frumkvæði sem íbúar Flóahrepps hafa tekið í þessum málum.
Skrifað af as Flettingar í dag: 236 Gestir í dag: 9 Flettingar í gær: 342 Gestir í gær: 80 Samtals flettingar: 315489 Samtals gestir: 46625 Tölur uppfærðar: 5.9.2025 04:26:57 |
clockhere Eldra efni
Í Flóanum Nafn: Aðalsteinn SveinssonFarsími: 8607714Tölvupóstfang: kolsholt@islandia.isHeimilisfang: Kolsholti IStaðsetning: FlóahreppurHeimasími: 4863304Tenglar |
© 2025 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is