|
Í Flóanum |
||
22.12.2010 07:26VetrarsólstöðurÍ dag tekur daginn aftur að lengja. Mér finnst það mun áhugaverðara ástand en það sem boðið hefur verið upp á undanfarið. Það er engan veginn upplífgandi veruleiki þegar sólinn sífellt drattast seinna á lappir og sekkur svo í Atlandshafið örfáum tímum seinna.
Hrútastofn landsins er í önnum þessa dagana. Það á einnig við um hrútana hér á bæ en nú eru þeir í óða önn að leggja drög að sauðburði næsta vors. Í ár var sú stefna tekinn hér að sleppa öllum sæðingum og treysta hrútunum allveg fyrir verkefninu. Hér hefur talsvert verið treyst á sæðingar til kynbóta í áratugi. Fárstofnin er samt það lítill að það hefur komið betur út að sæða annað eða þriðja hvert ár. Reyna þá að sæða nokkuð stórann hluta stofnsins og hafa þá úr einhverju að velja til lífs. Í fyrra voru sæðingar notaðar og í haust voru sett á bæði gimbrar og hrútar undan sæðingahrútum. Lambhrútarnir hafa undanfarna dag verið að spreyta sig og það gengið ágætlega. Nú er hinsvegar veturgamli hrúturinn að mestu tekinn við. Sá veturgamli er morbotnóttur og heitir Seifur. Hann er undan Laxa frá Laxárdal í Þistilfirði. Laxi var keyptur hingað lamb haustið 2007 að noðan. Sennilega hefur enginn einstaki hrútur haft meiri áhrif hér í ræktuninni en hann. Hann sjálfur er nú fallinn en töluvert er orðið til undan honum. Skrifað af as Flettingar í dag: 309 Gestir í dag: 5 Flettingar í gær: 575 Gestir í gær: 10 Samtals flettingar: 378909 Samtals gestir: 48780 Tölur uppfærðar: 9.1.2026 10:02:16 |
clockhere Eldra efni
Í Flóanum Nafn: Aðalsteinn SveinssonFarsími: 8607714Tölvupóstfang: kolsholt@islandia.isHeimilisfang: Kolsholti IStaðsetning: FlóahreppurHeimasími: 4863304Tenglar |
|
© 2026 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is