Í Flóanum |
||
15.01.2014 07:51SveitarstjórnarkosningarÞað verður kosið til sveitarstjórna hér á landi í vor. Nánar tiltekið laugardaginn 31. maí n.k. Það er því eðlilegt að almenningur þessa lands velti nú fyrir sér rekstri síns sveitarfélags og hvaða áherslur fólk vill sjá í meðferð skatttekna á næsta kjörtímabili. Síðast liðin átta ár hef ég verið oddviti sveitarstjórnar Flóahrepps. Þessi tími hefur verið í senn áhugaverður, lærdómsríkur, krefjandi og í aðalatriðum skemmtilegur. Það var ekki mikill aðdragandi að því í upphafi að ég gaf kost á mér í þetta. Fyrirfram hafði ég engan ásetnig að feta þessa slóð en í dag sé ég ekki eftir einni mínútu sem í þetta starf hefur farið frá vorinu 2006 Ég hef nú fyrir nokkrum vikum síðan upplýst félaga mína sem stóðu að framboði R listans vorið 2010 að ég ætli ekki að gefa kost á mér til endurkjörs í vor. Fyrir því eru nokkrar ástæður sem ég hugsanlega geri hér grein fyrir síðar. Nú er mikilvægt, eins og alltaf þegar kosningar eru, að íbúar í sveitarfélaginu íhugi vel hvaða menn og málefni eigi að leggja áherslu á aðdraganda kosninganna. Mér finnst nauðsynlegt að fram komi einhver framboð með skýra stefnu og samhent lið til að takast á við verkefnið næsta kjörtímabil. Skrifað af as Flettingar í dag: 688 Gestir í dag: 24 Flettingar í gær: 1280 Gestir í gær: 42 Samtals flettingar: 254159 Samtals gestir: 41512 Tölur uppfærðar: 30.5.2025 06:59:22 |
clockhere Eldra efni
Í Flóanum Nafn: Aðalsteinn SveinssonFarsími: 8607714Tölvupóstfang: kolsholt@islandia.isHeimilisfang: Kolsholti IStaðsetning: FlóahreppurHeimasími: 4863304Tenglar |
© 2025 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is