Í Flóanum |
||
Færslur: 2014 Júlí27.07.2014 22:46FlutningurÞað er héðan, af þessum bæ, að frétta að mamma ( Fólkið á bænum ( skrifað í jan. 2012 ) er flutt á Selfoss. Hún hefur keypt íbúð í Grænumörkinni á Selfossi og hefur undanfarnar vikur verið að vinna í því að flytja þangað. Hún hefur nú ekki staðið ein í þeim undurbúningi. Fjölmargir af hennar afkomendum og tengdafólki þeirra hafa aðstoðað hana. Bæði við að standsetja nýju íbúðina og flytja búslóðina héðan. Hér hefur hún átt heima í rúm 45 ár eða allt frá því að vorið 1969 ftytja foreldrar mínir hingað í Flóann með fjögur börn á aldrinum 8 til 11 ára. Það er talsvert átak að taka sig upp eftir svo langa búsetu og koma sér fyrir á nýjum stað. það var svo núna um helgina sem hún flutti. Mitt fólk fjölmennti til hennar í morgun til að óska henni til haminjgu með nýja heimilið. Hennar verður að vísu sárt saknað héðan af ungum sem öldnum.en á sama tíma samgleðjumst við öll með henni vegna þessa áfanga. ![]() Skrifað af as 18.07.2014 07:53UppskeraÞetta sumar ætlar að verða engu minna rigningasumar en í fyrra. Sá munur er nú samt á að það er mun hlýrra. Grasspretta hefur verið mikil í sumar og hér er heyfengur af fyrri slætti talsvert meiri en í fyrra. Það hefur ekki verið auðhlaupið að því að koma rúllunum heim. vegna bleytu. Þau tún sem standa lægst eru nánast að verða ófær og suma daga hefur ringt svo mikið að allstaður vaðast tún út þar sem farið er um. Rígresið sem ég sáði í vor virðist eiga erfitt uppdráttar og uppskera af því ekki orðin mikil. Enda stendur vatn uppi á hluta stykkjanna. Byggið hefur verið að skríða undanfarna daga. Nú held ég að það sé fyrst og fremst sól og hiti sem getur bjargað því að uppskeran verði ásættanleg í kornræktinni. Eigum við ekki bara að reikna með því svo verði. ![]() Skrifað af as 10.07.2014 07:40ÞúfaÞað var í júní 2002. Við Kolbrún vorum í ferðalagi austur á landi. Þá fréttum við að suður í Flóa væri verið að taka á móti merum í graðhestagirðingunni í Yrpholti. Stóðhesturinn var Piltur frá Sperli. Kolbrún átti gráa hryssu (Þotu).Hún var ágætis reiðhross en hafði undanfarin ár ekki verið járnuð. Hestamenskan var í algeru lágmarki á bænum um þetta leiti. Ekki virtist vera tími til þess að stunda útreiðar en alltaf voru samt áform um að breyta því. En þar sem merin var ekki í notkunn var nú ágætt tækifæri að fá undan henni. Hugmyndin var að ef vel tækist til að gefa henni Kolbrúnu Kötlu folald. Hún var okkar eina barnabarn á þessum tíma. Það varð því úr, þar sem við vorum þarna fyrir austan, að Kolbrún hringir í Sigmar ( sem þá var unglingurinn sem skilinn var eftir heima með búskapinn á meðan vð vorum á ferðalagi ) og spyr hann hvort hann geti sóttt merina og komið henni undir hest. Sigmar tók verkið snarlega að sér. Vorið eftir fæðist brúnt merfolald. Hún var skírð "Þúfa" og Kolbrún Katla eignaðist hana. Þúfa óx og dafnaði hér í haganum. Hestamennska var nú kannski ekki efst á dagskrá hjá fjölskyldunni í Lyngholti á þessum árum en alltaf var fylgst með uppvextinum hjá þúfu. Þegar hún svo var kominn á tamningaaldur þótti ekki annað tilhlýðilegt en að koma henni í tamningu. Fljótlega kom í ljós að hér var um að ræða afskaplega skemmtilegt reiðhross. Bæði ég og Jón í Lyngholti (pabbi Kolbr.Kötlu) fórum nú að fara á hestbak. Þetta varð alltaf skemmtilegra og skemmtilegra eftir því sem við fórum oftar. Gamlir reiðhestar og minna tamin hross voru nú dregin fram og járnuð. Nú var farið að stunda útreiðar stýft. Þúfa stóð alltaf fyrir sínu. Hún var öllum meðfærileg en ósérhlýfin og viljug. Kolbrún Katla var ekki orðin gömul þegar hún fór að fara á bak henni. Jafnvel stundum berbakt í hestagirðingunni. Barnabörnunum okkar fjölgaði og hestamennskan var nú orðin hluti af lífsmunstrinu bæði hér á bæ og í Lyngholti. Hrossunum fjölgaði einnig og nú er í Lyngholti álitlegur fjöldi reiðhesta og nokkur efnileg tryppi. Fjölskyldan stundar útreiðar og hestaferðir af líf og sál. Það urðu hinsvegar örlög Þúfu að slasast á fæti í hestaferð inn á Hrunamannafrétti. Á fjöllum () Þó hún hafi jafnað sig fljótlega þannig að hún gengur óhölt leiddi skoðun hjá dýralækni í ljós að sinar í fæti voru hugsanlega varanlegar skemmdar. Síðan þá hefur hún ekki verið notuð til reiðar. Þess í stað hefur hún átt folöld. Nú eru fæddar tvær hryssur undan henni. Paradís frá Lyngholti 2013 og Þokkadís frá Lyngholti 2014. Í gærkvöldi fór ég með Jóni, Kolbrúnu Kötlu og Hjalta Geir vestur í Borgarfjörð með Þúfu undir hest. Það er hann Hjalti Geir sem nú hefur hug á að eignast væntanlegt folald. En það má með sanni segja að "oft veltir lítil þúfa þungu hlassi." ![]() Skrifað af as
Flettingar í dag: 176 Gestir í dag: 33 Flettingar í gær: 836 Gestir í gær: 166 Samtals flettingar: 190488 Samtals gestir: 33829 Tölur uppfærðar: 2.4.2025 08:23:53 |
clockhere Eldra efni
Í Flóanum Nafn: Aðalsteinn SveinssonFarsími: 8607714Tölvupóstfang: kolsholt@islandia.isHeimilisfang: Kolsholti IStaðsetning: FlóahreppurHeimasími: 4863304Tenglar |
© 2025 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is