Í Flóanum |
||
26.03.2014 07:56Höfn í HornafirðiÉg sat stjórnarfund hjá SASS ( Samtök sunnlenskra sveitarfélaga ) á mánudagskvöldið austur á Höfn í Hornafirði. Ég var kallaður til sem varamaður í forföllum stjórnarmanns. Það er reyndar nokkuð ferðalag að fara austur á Höfn en farið var af stað á bíl héðan úr Flóanum um hádegi á mánudag. Stjórnarmenn voru svo teknir upp í bílinn á leiðinni. Við vorum kominn austur um hálf sex og hófst þá þegar stjórnarfundur. Á fundinum var m.a.farið yfir drög að ársreikningi samtakanna, kynntar voru niðurstöður úr könnunum um húsmæðismál og um gjaldtöku í ferðaþjónustu á Suðurlandi, Stjórnin ályktaði um gjaldtökuna. Skýrt var frá stöðu verkefna úr sóknaráætlun á Suðurlandi og málefni almenningssamgangna á Suðurlandi voru rædd. ásamt ýmsu fleira. Að loknum stjórnarfundi hittum við bæjarstjórn Hornafjarðar. Morguninn eftir ( í gærmorgun ) fór svo Ásgerður K. Gylfadóttir bæjarstjóri með okkur í heimsókn á nokkra athyglisverða staði og kynnti fyrir okkur þá starfsemi sem þar fer fram. Þetta var bæði fróðleg og skemmtileg heimsókn og vel til fundið hjá stjórn SASS að funda svona vítt og breytt um þetta víðferma starfssvæði. Um hádegi var svo keyrt aftur af stað heimleiðis. Nú var betra ferðaveður en á mánudaginn. Þá var nú varla hægt að ferðast fyrir hávaða roki og rigningu. Það var nú nokkur lífsreynsla að fara austur undir Eyjafjöllunum og um Öræfasveitina í suðaustan slagvirði á mánudaginn. Í gær var aftur á móti sól og blíða og nutum við sórbrotins útsýnis á leiðinni heim. ![]() Skrifað af as 20.03.2014 08:11Í tilefni gærdagsinsSet hér inn mynd af húsfreyjunni í tilefni þess að hún átti afmæli í gær. Myndin er að vísu ekki alveg ný en var tekinn fyrir nokkrum árum þegar frúin var á sunnudagsrúntinum í Flóanum einn góðan veðurdag. Bíllinn sem hún ekur er ekki og hefur aldrei verið í minni eigu. Mér finnst trúlegt að hún hafi fengið hann lánaðan hjá syni okkar. Ég álykta það út frá útlitinu á bílnum. Annars er vorjafndægur í dag og sól og blíða í Flóanum. Það er óhætt að fara að hlakka til vorsins. Skrifað af as 12.03.2014 08:12Skólastarf.Við Margrét sveitarstjóri fórum í heimsókn í skólana á mánudagsmorguninn. Við ræddum við skólastjórana bæði í Flóaskóla og leikskólanum Krakkaborg. Við fórum um allt skólahúsnæðið og hittum starfsfólk og nemendur á báðum skólastigum. Svona heimsóknir höfum við gjarnan farið í reglulega og mér finnst það alltaf jafn skemmtilegt. Það er gaman að hitta bæði nememdur, kennara og annað starfsfólk skólanna í sinni vinnu. Fyrst og fremst verður maður var við jákvæðni og vinnugleði ásamt metnaði fyrir öflugu skólastarfi. Það er fátt mikilvægara hverju samfélagi en að hafa góðar skólastofnanir. Ég er þeirra skoðunnar að svo sé hér í sveit. Það er fyrst og fremst starfsfólk skólanna undir öflugri forustu skólastjóranna sem tryggja að svo sé. En það þarf samt fleira til. Ef við ætlum að viðhalda hér góðu og öflugu skólastarfi þarf samfélagið allt að vera vakandi yfir því. Við erum öll ábyrg fyrir verkefninu. Það þarf að ríkja traust og virðing fyrir hlutverkum og stöðu hvers og eins, hvort sem verið er að tala um nemendur, kennara, skólastjórnendur, foreldra, sveitarstjórnarmenn, fræðslunefndarfulltrúa eða almenna íbúa sveitarfélagsins. Allir þessir aðila ( má vafalaust telja sérstaklega upp fleiri ) vilja hafa hér góðan og öflugan skóla og allir hafa ákveðnu hlutverki á að skipa svo það geti orðið. Það þarf að ríkja skilningur á sjónarmiðum og hlutverkum hvers og eins. Þannig náum við að vinna saman sem eitt teymi og getum náð árangri. Það næst enginn árangur ef tortryggni ríkir milli aðila og ásaknir ganga vixl um að þessi eigi að gera betur og/eða þessi eða hinn sé ekki að standa sig. Það er farsælla að menn líti sér nær. ![]() Skrifað af as 28.02.2014 23:03Daginn lengirÍ morgun kom sólin upp yfir Mýrdalsjökli, héðan að sjá, um kl hálf níu. Þegar ég kom inn úr morgunmjöltun um áttaleitið var samt orðið albjart og morgunroðinn lýsti upp austurhimininn. Þó það sé enn mið góa og talsvert eftir af þessum vetri, er samt ýmislegt sem minnir á að vorið mun koma að honum loknum eins og öllum öðrum vetrum. Það er hægt að treyst því orðið held ég alveg. Í gærkvöldi heyrði ég í álftinni en hún er sá farfugl sem maður verður fyrst var við hér þegar vetri tekur að halla. Þó ég og álftin séum nú engir sérstakir mátar ( Byggið, þurkurinn, rigningin og loftárásir () og Svanasöngur..... ()) var það ekki efst í mínum huga þegar ég heyrði í henni í gærkvöldi. Það sem mér datt í hug var að nú fari senn að vora. ![]() Skrifað af as 23.02.2014 08:11Meira smjör!Þegar ég var að alast upp var uppgangur í búskap í landinu. Það var í hverri sveit verið að puða við að stækka tún. Það var verið að byggja fjós og fjárhús vítt og breytt um landið. Lífsbaráttan gekk út á að framleiða meiri mjólk og meira kjöt. Það var sú einfalda leið til að auka tekjur og afkomu búanna. Að vísu gekk það ekki alltaf eftir. Tíðafarið hafði afgerandi áhrif og miklu meira en nú er með nútíma tækni og afurðamagnið sveiflaðist til og frá. Afurðir voru aldrei greiddar fullu verði fyrr en eftir á þegar afkoma afurðastöðvanna lá fyrir og hvort s.k. útflutningsuppbætur væru í samræmi við veruleikan sem þær áttu að takast á við. Það lá, ef ég man rétt, ekki fyrir fyrr en í apríl hvert endanlegt afurðaverð var fyrir næst liðið ár. Samt sem áður var bjartsýni ráðandi. Ef illa gekk eitt árið hertu menn bara enn róðurinn og reyndu að auka framleiðsluna til að takast á við áföll úr fortíð og í framtíð. Fyrir mig ungan manninn, á þeim árum, virkaði þetta áhugavert og ögrandi verkefni. En það var svo um það leiti sem ég hóf formlega þátttöku í búskapnum hér á bæ að menn áttuðu sig á því að í óefni var komið. Það var einfaldlega ekki hægt að tryggja afurðaverð fyrir afurðir sem ekki var markaður fyrir. Það hlóðust upp kjötfjöll og smjörfjöll sem enginn vildi bera kostnað af. Þá var farið í ýmsar aðgerðir til að minnka framleiðslu. Það voru settar stærðartakmarkanir á þau útihús sem "Stofnlánadeildin" (sáluga) mátti lána út á og í kjölfarið var einnig farið að verðtryggja öll lán. Síðan voru teknar upp framleiðslutakmarkanir með ýmsum hætti og til urði hugtök eins og kvóti, búmark, ærgildi, kúgildi, greiðslumark og e.t.v. einhver fleiri sem ég man ekki nú Þessar takmarkanir voru með ýmsu móti og misgáfulegar. Þeim fylgdu allskonar reglur og regluverk til draga úr göllum þeirra og þær náðu markmiðum sínum mis vel. Þetta hefur samt verið hluti af veruleikanum allt fram til þessa nú tæplega fjörutíu árum síðar. Nú bregður svo við, aftur á móti, að framleiðslutakmarkanir eiga ekki lengur við. Það vantar meiri mjólk fyrir innanlandsmarkaðinn og skortur á smjöri hefur þegar valdið kúabændum tjóni. Þetta er alveg nýr veruleiki fyrir flesta en getur verið áhugavert tækifæri. Ég vil nú ekki spá til um það hvað langt verður í það að takmarka verður framleiðsluna aftur en þykist vita að íslenskir kúabændur geta vel framleitt það magn sem innanalandsmarkaðurinn þarf á að halda. Það er reyndar stærra verkefni en svo, að auka framleiðsluna eins og þörf er nú, að það verði gert á nokkrum vikum. ![]() Skrifað af as 15.02.2014 16:35Tannfé..... framh..Þessi mynd átti að fylgja með síðasta bloggi en þegar ég ætlaði að skanna hana inn virkuðu ekki græurnar. Þar sem ég er nú enginn tölvuséní varð ég frá að hverfa í það skiptið. Á myndinni er Erla Björg, móðir hennar Steinunnar Lilju; vorið 1988 þegar hún tók á móti sínu tannfé. ![]() Skrifað af as 14.02.2014 08:14TannféHún Steinunn Lilja dótturdóttir mín kom hér í gær. Hún átti erindi við afa sinn og ömmu út í fjárhúsi. Það var tímabært að innheimta tannfé þar sem nú er kominn tönn. Það tilheyrir fjárbúskapnum hér á bæ að allir sem að honum standa fá sína fyrstu gimbur þegar fyrsta tönnin lítur dagsins ljós. Þannig eignaðist ég mína fyrstu kind og síðan einnig börnin mín öll og svo nú barnabörnin. Steinunni leiddist nú ekki að koma í fjáhúsið og á ég von á því að hún eigi nú eftir að taka þar til hendinni í framtíðinni. ![]() Skrifað af as 31.01.2014 21:17Hóflegar verðhækkanir..... eða þannig.Nú sem aldrei fyrr er mikilvægt að reyna að stemma stigu við verðbólgunni. Flestir átta sig á því að ef einhver árangur á að nást í að auka almennan kaupmátt í landinu er það lykilatriði að verðlag fari ekki úr böndum. Herferð er í gangi þar sem fyrirtæki, ríki og sveitarfélög eru hvött til að halda aftur af sér í verðlagshækkunum. Ýmsir hafa lýst því yfir að þeir ætli ekki að hækka verð á sinni vöru eða þjónustu.eða allavega minna en þeir voru búnir að hugsa sér að gera. RARIK sem er opinbert hlutafélag í eigu ríkisins hækkaði gjaldskrá sína um síðustu áramót. Eins og fram kom í fréttatilkynningu fyrirtækisins nam hækkunin rúmun 2% að meðaltali. Þetta þykir nú kannski vera hófleg hækkun og innan "verðbógumarkmiða seðlabankans". ![]() En ef að maður skoðar málið aðeins betur kemur í ljós að það eru ekki allir viðskipitavinir fyrirtækisins sem þurfa að greiða þessa hækkun. Stór hluti viðskiptamanna greiða alls enga hækkun. Þess í stað eru það eingöngu þeir sem í dreyfbýli búa sem taka á sig alla þess hækkun. Þeir þurfa því að taka á sig 4,5% hækkun sem er rúmlega tvöfaöld meiri hækkun er umrædd "verðbógumarkmið". ![]() Ég hef nú stundum hér á síðunni bísnast yfir því hvernig þessum dreyfingakostnaði raforku er hér fyrirkomið. Raforkuverðið () og Varmadælur og rafmagnsreikningurinn (). Þessi gríðalegi munir á raforkuverði á milli svæða í landinu stendur orðið allri búsetuþróun og atvinnuuppbyggingu í dreyfbýli fyrir þrifum. Skrifað af as 24.01.2014 23:12KolsgarðurSögur herma að Kolur sem bjó í Kolsholti á landnámsöld hafi gert sér tíðförult til Ragnheiðar sem á Ragnheiðarstöðum bjó. U.þ.b 9 km eru á milli bæjanna í beina línu en þar er yfir heilmiklar mýrar að fara. Kolur lét því hlaða garð mikinn á milli bæjanna því ekki þótti honum sæma að hitta Ragnheiði aurugur og blautur. Garður þessi er við Kol kendur og heitir Kolsgarður. Víða sér móta fyrir honum ennþá. Út frá honnum ganga afleggjarar á nokkrum stöðum. Kolsgarður liggur hér beina línu í gegnum "Engjavöllin" suður í Saurbæjarland með stefnu á Hamar. Hann er nokkuð ógreinilegur og erfitt að sjá hann ef maður er staddur niður í engjum. Hann sést aftur á móti oft greinilega í fjarlægð. Standi maður upp á "Hrafnabjörgum" ,sem eru klettar í brekkunni rétt austan við núverandi hús í Jaðarkoti, og horfir niður að Hamri sér maður beint eftir honum. Jarðfræðingar hafa kannað þennan garð hér og telja að hann hafi verið byggður upp um árið 1000 og svo endur hlaðinn um árið 1600. Ekki þekki ég hvaða heimildir eru til um vegagerð hér á landi. Velti samt fyrir mér hvort " Kolsgarður" sé bara ekki upphaf vegagerðar á Íslandi. ![]() Skrifað af as 15.01.2014 07:51SveitarstjórnarkosningarÞað verður kosið til sveitarstjórna hér á landi í vor. Nánar tiltekið laugardaginn 31. maí n.k. Það er því eðlilegt að almenningur þessa lands velti nú fyrir sér rekstri síns sveitarfélags og hvaða áherslur fólk vill sjá í meðferð skatttekna á næsta kjörtímabili. Síðast liðin átta ár hef ég verið oddviti sveitarstjórnar Flóahrepps. Þessi tími hefur verið í senn áhugaverður, lærdómsríkur, krefjandi og í aðalatriðum skemmtilegur. Það var ekki mikill aðdragandi að því í upphafi að ég gaf kost á mér í þetta. Fyrirfram hafði ég engan ásetnig að feta þessa slóð en í dag sé ég ekki eftir einni mínútu sem í þetta starf hefur farið frá vorinu 2006 Ég hef nú fyrir nokkrum vikum síðan upplýst félaga mína sem stóðu að framboði R listans vorið 2010 að ég ætli ekki að gefa kost á mér til endurkjörs í vor. Fyrir því eru nokkrar ástæður sem ég hugsanlega geri hér grein fyrir síðar. Nú er mikilvægt, eins og alltaf þegar kosningar eru, að íbúar í sveitarfélaginu íhugi vel hvaða menn og málefni eigi að leggja áherslu á aðdraganda kosninganna. Mér finnst nauðsynlegt að fram komi einhver framboð með skýra stefnu og samhent lið til að takast á við verkefnið næsta kjörtímabil. Skrifað af as 01.01.2014 07:47NýársnóttGleðilegt ár öll sömul. ![]() Ég vona að þið hafið átt gleðileg áramót og nýársnóttin hafi verið ykkur slysalaus og ánæguleg í alla staði. Sjálfur átti ég frábært kvöld með öllu mínu fólki í gærkvöldi. Strax eftir að kvöldverkum var lokið í fjósinu var komið saman á Bjallanum við árlega áramótabrennu hér í Kolsholtshverfinu. Eftir að hafa horft á brennuna og ýmsar gerðir af flugeldum í góðra vina hópi í góða stund var farið heim í Jaðarkot þar sem Sandra og Sigmar buðu til veislu. Þar voru samankomin auk okkar Kolbrúnu öll okkar börn, tengdabörn, og barnabörn ásamt móður minni alls 16 manns Þótt ýmilegt geti gengið á á nýársnótt samkvæmt þjóðtrúnni var ég ekki var við það. Sagt er m.a. að á nýársnótt fari selir úr hömum sínum og gangi á land, kirkjugarðar rísa, álfar flytja búferlum og kýr tali mannamál. Ég var sofnaður fljótlega eftir miðnætti og svaf fram að því að tímbært var orðið að fara í fyrstu morgunmjaltir á þessu ári núna fyrr í morgun. Þær voru rólegar kýrnar áðan eins og þeim lætur best og ekki að sjá á þeim að þær hafi staðið í stórræðum í nótt. Ég útiloka samt ekki að þær hafi talað mannamál í nótt. Ég hef það fyrir satt að geri þær það, vilji þær hafa næði á meðan. Það er ekki minn stíll að trufla þá sem í næði vilja vera. ![]() Skrifað af as 25.12.2013 11:12Gleðileg jólÁ þessum fallega en kalda jóladegi sendi ég lesendum síðunar mínar bestu jólakveðjur. Ég vil þakka öll góð og skemmtileg samskipti á árinu. Í tilefnni þess að jólin eru hátíð barnanna set ég hér inn mynd af öllum barnabörnunum okkar Kolbrúnar. Þau hafa undanfarna daga og vikur beðið með mikilli eftirvæntingu að þessi jól fari nú loks að láta sjá sig. Nú er biðin á enda og hægt að fara að hlakka til einhvers annars. Ég hlakka til vorsins. Skrifað af as 18.12.2013 22:17SnjórUndanfarna daga hefur verið snjór yfir öllu hér í Flóanum. Það þarf nú ekki endilega að koma á óvart á þessum árstíma og það vissulega hjálpar í baráttunni við myrkrið í skammdeginu að hafa hvíta jörð. Við fórum um síðustu helgi og rákum tryppin úr stóðini. Þau eru nú í ágætu standi en okkur fannst rétt að fara að gefa þeim sérstaklega. Nú er orðið tímabært að fara að huga að tilhleypingum í fjárhúsinu. Ég hef reyndar verið að grípa í að endurýja gólfið undir gemlingunum og þarf að ljúka því áður en ég sleppi hrútinum í ærnar. Það hefst nú vonandi innan tíðar. ![]() Skrifað af as 11.12.2013 21:54Hangikjöt.Ég hef undanfarin haust staðið í því að reykja kjöt. Nú orðið finnst mér minna varið í hangikjöt nema hafa reykt það sjálfur. Þetta er að sjálfsögðu bara fyrirhöfn og vesen. En ég er haldinn þeirri áráttu að finnast tilveran áhugaverari ef maður hefur hæfilega mikið fyrir hlutunum. Aðstaðan er nokkuð frumstæð en kannski lætur maður það eftir sér einhvern tímann að koma sér upp almennilegum reykkofa. Þangað til verður þessi reykofn sem ég útbjó úr gamalli haugsugu að duga. ![]() Skrifað af as 27.11.2013 23:36Grænn opalEkki veit ég hvort þeir sem viðstaddir voru útför föður míns, Sveins Þórarinssonar, í Selfosskirkju í gær veittu því eftirtekt að á meðal blóma lá á kistunni einn pakki af grænum opal. Opalpakkin lá þarna allan tíman sem athöfnin fór fram og var borinn með kistunni út úr kirkjunni að athöfn lokinni.
Skrifað af as Flettingar í dag: 56 Gestir í dag: 10 Flettingar í gær: 836 Gestir í gær: 166 Samtals flettingar: 190368 Samtals gestir: 33806 Tölur uppfærðar: 2.4.2025 07:02:42 |
clockhere Eldra efni
Í Flóanum Nafn: Aðalsteinn SveinssonFarsími: 8607714Tölvupóstfang: kolsholt@islandia.isHeimilisfang: Kolsholti IStaðsetning: FlóahreppurHeimasími: 4863304Tenglar |
© 2025 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is