Í Flóanum |
||
15.09.2010 07:48SASSSamtök sunnlenskra sveitarfélaga hélt Ársþing sitt í gær og í fyrradag. Við vorum fjögur frá Flóahrepp sem sátum þetta þing. Skrifað af as 11.09.2010 07:34RéttirReykjaréttir á Skeiðum eru í dag. Í gær fór ég ásamt Stefáni Ágúst frænda mínum ríðandi á móti safninu og fylgdum við því svo eftir síðasta spölinn niður í réttir. Þetta var ágætis útreiðatúr. Við vorum samferða megnið af leiðinni fleira af góðu fólki héðan úr Flóanum sem voru í sömu erindagjörðum og við. Þetta er drjúgur spölur héðan neðan úr Flóa og upp öll Skeiðin en við mættum fjallsafninu á Sandlækjarholtinu. Hrossin stóði sig ágætlega en skemmtilegra hefði verið ef þau hefðu verið í meiri þjálfun. Hrosssóttin hefur svolítið spilað inn í útreiðar í sumar hjá okkur. Þau hross sem við höðum til fara í gær hafa lítið verið notuð undanfarnar vikur vegna hósta sem hrjáðu þau á tímabili í sumar en þau eru nú óðum að ná sér á strik aftur. Hrossin sem Jón í Lyngholti fór á fjall með voru hinsvegar í góðu standi enda virtist hann vera í góðum málum þegar við hittum hann með safninu í gær. Jón fór hér af stað á þriðjudagmorguninn en þá keyrði ég hann og hrossin upp í réttir þaðan sem riðið var inn á afrétt. Í dag er svo meiningin að ríða heim úr réttunum. Hugsanlega verður einhversstaðar stoppað í kjötsúpu á leiðinni. Skrifað af as 07.09.2010 07:48Að byggja skóla...Fræðsla grunnskólabarna er eitt af lögbundnum verkefnum sveitarfélaga. Þeim ber skylda til þess að sjá til þess að öll börn á grunnskólaaldri í sveitarfélaginu stundi grunnskólanám. Til þess að uppfylla þessar skyldur þurfa sveitarfélög annað hvort að reka grunnskóla eða fela einhverjum öðrum að sinna þessu verkefni gegn greiðslu. Kostnaður við hvern nemanda er alltaf greiddur af því sveitarfélagi sem nemandinn á lögheimili í. Lengst af hefur Flóahreppur farið báðar þessar leiðir. Flóaskóli var rekinn fyrir 1. til 7. bekk en 8.,9.og 10. bekkur var keyrður á Selfoss og Sveitarfélaginu Árborg greitt fyrir að kenna þeim. Til þess að reka skóla þarf húsnæði og aðstöðu. Þó ég sé nú þeirrar skoðunnar að gæði skólastarfs fari nú aðalega eftir hæfni, kunnáttu og getu kennaranna sem sinna skólastarfinu er ljós að sú aðstaða sem boðið er upp á skiptir líka miklu máli. Góð aðstaða stuðlar líka að því að halda í og fá til starfa hæfileikaríkt starfslið með metnað fyrir þvi sem það er að gera. Sum sveitarfélög hafa komist að þeirri niðurstöðu að skynsamlegt sé að eiga ekki skólahúsnæðið sem þau reka skólana í, heldur leiga það frekar frá fasteignafélögum. Mikilvægt er þó að átta sig á því að rekstur skólahúsnæðisins og byggingakostnaður þess er alltaf á endanum greiddur af þeirri starfsemi sem fram fer í húsinu. Þegar ljóst var orðið að Flóaskóli var að verða of lítill fyrir þá starfsemi sem þar fór fram var ákveðið að skoða þessi mál í heild hjá sveitarfélaginu og marka skýra stefnu um það hvert ætti að stefna í þessum málum. Strax kom í ljós að vaxandi áhugi var meðal íbúa sveitarfélagsins að efla enn frekar skólastarfið í Flóaskóla með því að stækka hann í heildstæðan gunnskóla fyrir alla tíu bekkina. Ég held að tvær megin ástæður hafi verið fyrir þessum aukna áhuga á að bæta þremur elstu bekkjunum við Flóaskóla og hætta að senda þá á Selfoss. Í fyrsta lagi hefur börnum fjölgað í öllum árgöngum á undanförnum árum. Til þess að reka skóla fyrir unglinga er lykilatriði að nemendurnir séu ekki of fáir svo dæmið gangi upp bæði félagslega og rekstarlega. Hin meginástæðan fyrir þessum aukna áhuga á stækkun Flóaskóla er að mjög vel hefur tekist til með skólastarfið frá því að skólinn var stofnaður og hann nýtur mikils trausts hér í samfélaginu. Sjálfur hef ég lengi verið þeirra skoðunnar að stefna ætti að þessari stækkun. Til þess að meta möguleika Flóahrepps á að fara í þessar breytingar var settur á stofn stýrihópur í byrjun sumars 2008 sem hafði það verkefni að gera úttekt og vinna tillögur að staðsetningu og fyrirkomulagi við uppbyggingu skólamála í sveitarfélaginu. Það fólk sem skipaði þennan stýrihóp gerði sér strax grein fyrir því að til þess að dæmið gæti gengið upp varð að taka tillit til tveggja lykilatriða. Fjármagn til uppbyggingar og reksturs er takmarkandi þáttur. Það getur aldrei gengið að skólastarf hér í sveit sé dýrara en gengur og gerist annarsstaðar. Hitt atriðið sem líka þarf að vera fyrir hendi ef hér á að reka heilstæðan grunnskóla af fullum metnaði er að húsnæði og öll önnur aðstaða sem þarf til þess sé til staðar. Unnin var þarfagreining á því heildarhúsnæði sem þyrfti fyrir alla grunnskólabekkina í Flóaskóla. Stýrihópurinn lét gera úttekt á þeim byggingum sem fyrir er á svæðinu með tillit til þess hvernig þær gætu nýst sem best í framtíðinni. Sérstaklega var horft til þess hvort það gæti borgað sig að breyta eldri byggingum á einhvern hátt m.a.elsta skólahúsnæðinu og félagsheimilinu Þjórsárveri svo þær byggingar nýttust betur fyrir skólastarfið. Niðurstaðan úr þeirri vinnu var að væntanlega væri hagkvæmast og best að nýta eldri byggingarnar nánast óbreittar en leggja áherslu á að byggja við það sem upp á vantar. Allri kennslu yrði hætt í elsta skólahúsnæðinu og það nýtt fyrir skrifstofur og vinnuaðstöðu kennara auk þess sem þar væri hægt að hafa geymslur. Mötuneyti skólans yrði áfram í Þjórsárveri. Vegna aðstæðna á svæðinu og með framtíðarnýtingu þess í huga fyrir skóla- og íþróttastarfsemi var lagt til að reisa viðbyggingu á tveimur hæðum við skólann. Viðbyggingin sem þyrfti að vera u.þ.b. 1000 fermetrara af gólffleti innhéldi fyrst og fremst skólastofur til kennslu. M.a. sérgreinastofur eins og t.d. fyrir heimilsfræði, smíðar, myndmennt, textílmennt og tölvuver. Sveitarstjórn Flóahrepps lét í framhaldi af þessari vinnu frumhanna viðbyggingu og óskaði síðan eftir verðhugmyndum í byggingu hennar frá verktökum. Byggingin var hönnuð sérstaklega með það fyrir augum að hún gæti verið bæði ódýr í byggingu og rekstri. Þegar óskað var eftir verðhugmyndum frá verktökum var m.a.sérstaklega verið að leita eftir hugmyndum og tillögum þeirra um byggingarefni með það að leiðarjósi hvað væri hagstæðast í dag bæði með tillit til kostnaðar og endingu. Á grundvelli allrar þessarar vinnu ákvað sveitarstjórn Flóahrepps svo að fara í þessar framkvæmdir. Áætlun gerði ráð fyrir að hægt væri að fullklára þessa viðbyggingu fyrir umtalsvert lægri upphæð en nefnt var í upphafi. Ekki var talin þörf á að auka skuldir sveitarfélgsins vegna þessara framkvæmda. Framkvæmdir við bygginguna sjálfa hófust í ágúst á síðast liðnu ári og eru nú á lokastigi. Byggingin hefur verið tekin í notkun og nú í vetur stunda nám í skólanum 9 bekkir gunnskólans. 8.bekk var bætt við síðast liðið haust og 9. bekk núna þegar skóli hófst í haust. Búið er að taka ákvörðun um að 10. bekkurinn bætist svo við næsta haust. Heildar kostnaður við framkvæmdir er enn sem komið undir þeim kostnaðaráætlunum sem gerðar voru. Þeir tímarammar sem unnið var eftir hafa að mestu staðist og byggingin er þegar komin í notkunn eins og að var stefnt. Allir sem að þessum framkvæmdum hafa komið hafa lagt sig fram um að verkið gæti gengið upp. Ég vil þakka þeim öllum fyrir frábæra vinnu og íbúum Flóahrepps óska ég til hamingju með glæsilegan skóla. Skrifað af as 29.08.2010 07:36HöfuðdagurHöfuðdagurinn er í dag. Oft hefur verið rætt um að á þessum degi verði veðrabrigði og má það til sanns vegar færa í mörgum tilfellum. Þar sem sumarið hefur verið bæði hlýtt og þurrviðrasamt má ætla að nú fari hann að leggjast í kalsa rigningar. Það hefur reyndar nokkurn vegin verið raunveruleikin síðustu ár. Hvort sú verði raunin í ár kemur í ljós. Þessa stundina er veðrið allavega hið besta þó hann hafi reyndar svolítið þykknað upp í nótt. Ég man eftir rosasumrum þar sem ringdi nánast allt sumarið en á Höfuðdaginn eða þar um bil snérist hann í norðanátt og þurk. Þá stóð fyrsti sláttur fram í september og hirt í súgþurkun. Eins og oft áður þá fer mestur hluti vinnudagsins hjá mér á þessum tíma í bókhald. Bókhaldsvinna er nauðsynlegur hlutir í öllum rekstri. VSK uppgjör tvisvar á ári þ.e.1. sept og 1, mars heldur manni við efnið í þessum málum. ![]() Það er helst síðustu dagana fyrir þessar dagsetningar að manni dettur í hug að skynsamlegt gæti verið að vinna þetta jafnt og þétt yfir árið. Aðra hluta ársins hvarlar ekki að manni að fara pæla mikið í bókhaldinu þegar nóg annað áhugavert er hægt að taka sér fyrir hendur. ![]() Skrifað af as 24.08.2010 07:48HaustÞað má segja að haustið hafi komið með norðan áttinni nú um helgina. Verkefnum sumarsins er líka að ljúka og haustverkin taka við. Heyskap er nú að mestu lokið hér á bæ. Það sem ekki var beitt starx að loknum fyrri slætti hefur verið slegið aftur. Ekki er samt allveg útséð með að ekki verði slegið meira gras á þessu sumri. Spretta hefur verið mikil og alls ekki ljóst hvort allt þetta gras sem eftir er nýtist allt til beitar. Jafnvel gæti verið nauðsynlegt að slá eitthvað í þriðja sinn. Sigmar er byrjaður í kornslættinum en fyrsti akurinn í Flóanum á þessu hausti var sleginn í gær. Fleiri akrar eru tilbúnir til þreskingar en undanfarna daga hefur verið beðið eftir sýru en megnið af korninu sem ræktað er hér í Flóanum er verkað í sýru. Afréttamálafundur verður haldinn nú fimmtudaginn kemur. Á fundinum verður skipað í leitir og fyrirkomulag smölunnar á afréttinum verður til umræðu. Reykjaréttir verða 11 sept n.k. Flóaskóli verður settur í vikunni. Nú er verið að leggja lokahönd á frágang inna dyra í nýbyggingu skólans. Nýbyggingin verður tekin í notkunn núna strax og skóli hefst á fimmtudaginn kemur. Er um gerbreytingu á allri aðstöðu í skólanum að ræða. Í vetur verður 9. bekkur í fyrsta sinn í Flóaskóla. Ákvörður hefur verið tekin um það að 10. bekkur bætist svo við næsta haust. Stjórn Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga vinnur nú að undirbúningi ársþings sambandsins en það veður haldið nú um miðjan sept. Stefnt er að þvi að á þinginu verði undirritaður samningur 13 sveitarfélaga á Suðurlandi um samstarf um þjónustusvæði vegna málefna fatlaðra, en sveitarfélögi eru að taka við málaflokkum úr hendi ríkisins nú um næst áramót. Skrifað af as 21.08.2010 07:24GrillveislaFjölmenni var hér á sunnudaginn var. Þá hittumst við systkinin fjögur úr austurbænum í Kolsholti ásamt foreldum okkar, mökum, börnum, tengdabörnum og barnabörum og grilluðum saman. Þessi hópur telur orðið hátt í fjörutíu manns
Þrátt fyrir alveg einmuna blíðu flesta daga í sumar leit ekki mjög vel út með veðrið þennan dag þegar hann fór að nálgast. Þegar ljóst var orðið á laugardagskvöldið að veðurspáin var bæði rok og rigning tók Sigmar sig til og fór að taka til á verkstæðinu í hlöðunni. Um hádegi á sunnudagin var búið að breyta hlöðuni í samkomusal og þau systkin sendu SMS á liðið um að samkoman yrði þar að þessu sinni. Vel var mætt og áttum við þarna bæði góða og skemmtilega og einnig næringaríka stund saman.
Skrifað af as 15.08.2010 07:40LandeyjahöfnÉg skrapp skottúr til Vestmannaeyja í gær. Það eru breyttar forsendur í samgöngum við Eyjar með tilkomu Landeyjarhafnar. Við fórum héðan um hádegi og vorum komin til Eyja um hálf þrjú. Stoppuðum þrjá tíma í Eyjum og en fórum þá aftur um borð í Herjólf sem sigldi síðan kl. 6 til lands. Samgöngur skipta miklu máli á landsbyggðinni. Það er ekki að efa að Landeyjarhöfn á eftir að hafa mikil áhrif hér á Suðurlandi. Tilkoma hennar tengir Vestmannaeyjabæ beint við önnur sveitarfélög á Suðurlandi. Það skapar tækifæri á meira samstarfi og samvinnu á svæðinu. Það eykur einnig umferð og flæði fólks á svæðinu öllu. Það mun auka umsvif á ýmsum sviðum bæði í Eyjum og í landi. Landeyjarhöfn hefur áhrif á umferðina hér í Flóanum. Með tilkomu hennar er ennþá meiri nauðsyn á nýrri brú yfir Ölfusá við Selfoss. Tvöföldum Suðurlandsvegar (sérstaklega á leiðinni milli Hveragerðis og Selfoss að mínu mati) og ný brú á Ölfusá við Laugardæli er orðið bráð aðkallandi verkefni. Ég óska Vestmannaeyingum sem og öllum öðrum sem njóta góðs af þessarri framkvæmd til hamingu með að Landeyjarhöfn skuli vera komin í gagnið. Vonandi á höfnin eftir að reynast sem best og siglingar um hana ganga vel. Skrifað af as 10.08.2010 07:10VestfirðirÁ fimmtudaginn í síðustu viku var öllu slegið upp í kæruleysi. Við hjónin ákváðum að taka nokkra daga í ferðalag um Vestfirði. Helstu nauðsynjum var hlaðið í LandRóverinn og síðan keyrt af stað. Það er alltaf áhugavert að ferðast um Ísland. Við fórum víða um Vestfirði og fengum mjög gott veður. Hittum ekki marga sem við þekktum en stoppuðum þó hjá Júlíu og Nóa á Ísafirði. og áttum þar góða stund. Á Patreksfirði hitttum við einnig, fyrir tilviljun, skólabróðir okkar frá því við vorum á Hvanneyri fyrir rúmlega þrjátíu árum.
Skrifað af as 31.07.2010 07:22Stjórnsýslan og opinberar stofnanirSveitarfélögin eru hluti af stjórnvöldum í landinu. Þau gegna mikilvægu hlutverki í stjórnsýslunni. Lögbundin verkefni þeirra eru margvísleg og fjölbreytt. Mikilvægt er að verkaskipting milli ríkisvaldsins og sveitarfélaga séu skýr. Eitt af þeim markmiðum sem unnið er að með flutningi verkefna frá ríki til sveitarfélaga er einmitt að gera stjórnsýsluna einfaldari og þá einnig skilvirkari. Skrifað af as 20.07.2010 07:28Vatnsveitan og blíðanÞað er búið að vera hér allveg einmuna blíða undanfarna daga. Um helgina var sól og hiti alla dagana. Í svona sumarveðri fjölgar mikið í sveitinni. Öll sumarhús eru full af fólki, tjaldsvæðin eru full og eyðibýlin fyllast af fólki.
Skrifað af as 15.07.2010 07:40FótboltiÞótt ég hafi tekið virkan þátt í ýmsum störfum fyrir ungmenna-og íþróttahreyfinguna í gegnum tíðina hef ég lítið lagt mig niður við það að horfa á íþróttaviðburði. Ég t.d. horfi aldrei á íþróttaþætti í sjónvarpi. Ég hef áhuga á því að fylgast með hvernig íþróttafólk úr Flóanum er að standa sig og leita eftir því í þeim íþróttafréttum sem ég les. Minn íþróttaáhugi hefur aðalega gengið út á að ungt fólk hafi tækifæri til þess að taka þátt í íþróttum sjálfum sér og samfélaginu til góða Þrátt fyrir þetta hefur það ekki farið fram hjá mér að margir hafa töluverðan áhuga á að horfa á fótboltaleiki. Það var t.d. einhvert fótboltamót haldið nú sumar í S-Afríku sem hinir ólíklegusta aðilar fylgdust spenntir með í margar vikur. Ég þekkti engann sem þar keppti og veit ekki neitt um þetta mót meira. Á mánudgakvöldið s.l. fór það nú samt svo að ég fór á knæpu eina hér á Suðurlandi gagngert til þess að fylgjast með fótbolta. Það var reyndar konan mín sem stakk upp á því að við færum að fylgjast með þessum leik. Ég man ekki eftir að hún hafi komið með síka uppástungi fyrr. Leikurinn sem við fórum að horfa á var leikur í áttaliða úrslitum í Vísa bikarkeppni karla. Þar áttust við 2. deildar lið Víkings í Ólafsvík og úrvalsdeildarlið Stjörnunnar í Garðabæ. Í liði Víkings í Ólafsvík er ungur maður frá Grundafirði sem við þekkum vel og allt hans fólk. Fjölskylda hans var í hópferðalagi hér á Suðurlandi þegar leikurinn fór fram. Hópurinn fylgst með beinni útsendingu af leikum á stóru tjaldi á "Kanslaranum" á Hellu. Þarna kom saman hátt í þrjátíu mans á öllum aldri, allt tengt þessum eina leikmanni úr Grundafirði. Leikurinn var stór skemmtilegur og dramtískur með afbrigðum. Þrátt fyrir að Víkingur væri með tveggja marka forskot þegar aðeins örfáar mínútur voru eftir ef venjulegum leiktíma tókst Stjörnunni að jafna. Að lokinni framlenginu höfðu bæði lið bætt við einu marki og var því enn jafnt. Þá var farið í vítaspyrnukeppni og þegar komið var í bráðabana náði markmaður Víkings að verja. Nú var komið að okkar manni í liði Víkings og tryggði hann sínum mönnum sigur með öruggu marki. Það var mikil stemming í hópnum þarna á Hellu allan tímann sem leikurinn stóð yfir. Þegar lokamarkið kom svo loksins brutust út gífurleg fagnaðarlæti. Ég hefði aldrei getað trúað því hvað maður getur orðið eftir sig eftir að horfa á einn fótboltaleik. Ég vil þakka bæði Víkingum og Stjörnumönnum fyrir þessa skemmtun. Ég óska Ólafsvíkingum, eða Ólsurum eins og þeir eru alltaf kallaðir í mín eyru þegar ég kem á Snæfellsnesið, til hamingu með glæsilegan árangur. Skrifað af as 11.07.2010 07:37Jöfnunarsjóður sveitarfélagaStór hluti tekna Flóahrepps hefur komið í gegnum Jöfnunarsjóð sveitarfélaga. Umfang Jöfunnarsjóðsins hefur stóraukist á undanförnum árum en um hann fara u.þ.b. 20 milljarðar á þessu ári. Regluverk jöfnunnarsjóðsins eru nokkuð flókið og hann er að greiða til sveitarfélaganna framlög á ýmsum forsendum. Í grófum dráttum er hægt að skipta framlögum úr sjóðnum til Flóahrepps í þrennt.
Í þriðja lagi er um framlög að ræði vegna ýmissa útgjalda s.s reksturs grunnskólans, skólaaksturs og fleira.
Skrifað af as 06.07.2010 07:39SkólabyggingVinnuhópur um framkvæmdir við stækkun Flóaskóla hittist í gærmorgun. Allt kapp er nú lagt á að hnýta alla lausa enda varðandi bygginguna svo hægt verði að taka hana í notkun þegar skóli hefst í ágúst n.k. Þrátt fyrir nokkrar ófyrirséðar uppákomur í framkvæmdinni er allar horfur á að verkið ætli að ganga vel upp. Verið er að ganga frá pöntunum á húsgögnum og ýmsum tækjum s.s tölvum, skjávörpum og heimilstækjum í heimilsfæðistofuna. Einnig er verið að semja um og afla tilboða í síðustu verkþættina bæði varðandi bygginguna sjálfa og umhverfi hennar.
Skrifað af as 01.07.2010 07:42HeyskapurÞað er alltaf skemmtilegt að standa í heyskap. Heyskapur er ekki svona "þægileg inni vinna" eins og borgarstjórastaðan í Reykjavík er. Heyskap fylgir langir vinnudagar og stanslaus angist yfir að allt gangi nú upp sem lagt er undir. Afkoma búrekstursins næsta árið ræðst að stæðstum hluta af því hvernig til tekst með heyölfun. Það sem helst getur farið úrskeiðis hjá manni er að það er ekki rétt veður og að vélarnar taki upp á því að bila. Erfitt getur verið að reikan út veðrið. Það er nefnilega ekki hægt að teysta því að veðurspáin sé rétt. Það er ekki heldur hægt að teysta því að hún sé vitlaus. Það getur orðið talsvert tjón að slá mikið og fá svo rigningu ofan í flekkinn. Það verður einnig tjón að sleppa því að slá vegna þess að það spáir rigningu en missa svo af góðum þurki. Heyskapur í dag er stundaður með stórvirkum vinnuvélum á örfáum dögum. Það er því mikið lagt undir í einu og eins gott að vélarnar virki þegar til á að taka. Ef eitthvað bilar þarf að geta brugðist hratt við. Annað hvort með því að gera við eða gera einhverjar aðrar ráðstafanir til þess að bjarga heyjunum. Best er að geta gert við áður en vélin bilar. Góður vélamaður þarf að hafa tilfinningu fyrir vélinni sem hann er að vinna á. Það getur verið betra ef það fara að heyrast einhver aukahljóð eða vélin er ekki að haga sér eins og hún er vön að gera að stoppa og kanna hvað veldur og laga það áður en eitthvað brotnar. Svo getur það líka verið skynsamlegast í stöðunni að hækka bara í útvarpinu og halda áfram að bjarga heyjunum. Hér á bæ eru við búnin að koma öllu heyi af fyrsta slætti í rúllur. Skrifað af as 26.06.2010 07:44FundirÍ gærmorgun var fyrsti fundur skipulagsnefndar uppsveita Árnessýslu og Flóahrepps á þessu kjörtímabili haldinn á Laugarvatni. Töluverðar breytingar hafa orðið á nefndinni eftir kosningarnar. Frá því að ég tók sæti í nefndinni fyrst 2007 eru allir hinir sem þá voru í nefndinni hættir og nýir fulltrúar tekið við. Stjórn SASS samþykkti að taka þátt í að senda heilbrigðisráðherra ásamt Sambandi sveitarfélaga á Suðurnesjum, Samtökum sveitarfélaga á Vesturlandi og Hafnafjarðarbæ erindi vegna málsins. Skrifað af as Flettingar í dag: 56 Gestir í dag: 10 Flettingar í gær: 836 Gestir í gær: 166 Samtals flettingar: 190368 Samtals gestir: 33806 Tölur uppfærðar: 2.4.2025 07:02:42 |
clockhere Eldra efni
Í Flóanum Nafn: Aðalsteinn SveinssonFarsími: 8607714Tölvupóstfang: kolsholt@islandia.isHeimilisfang: Kolsholti IStaðsetning: FlóahreppurHeimasími: 4863304Tenglar |
© 2025 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is